Boeing B-52 Stratofortress
Útlit
(Endurbeint frá B-52 Stratofortress)
Boeing B-52 Stratofortress er langdræg sprengjuflugvél frá Boeing með 32 tonna burðargetu. Bandaríski flugherinn hefur notað þessar vélar frá því þær komu á markað árið 1955. Upphaflega voru þær hannaðar til að bera kjarnavopn í kalda stríðinu en hafa oftast borið hefðbundnar sprengjur. Í Persaflóastríðinu var 40% af sprengjum Bandaríkjamanna varpað úr slíkum vélum.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist B-52 Stratofortress.