Averróes
Útlit
(Endurbeint frá Averroes)
Vestræn heimspeki Miðaldaheimspeki | |
---|---|
Nafn: | Averróes |
Fæddur: | um 1126 |
Látinn: | 11. desember 1198 |
Skóli/hefð: | íslam |
Helstu viðfangsefni: | íslömsk heimspeki, stærðfræði, læknisfræði |
Markverðar hugmyndir: | aristótelísk heimspeki í íslömsku samhengi |
Áhrifavaldar: | Aristóteles |
Hafði áhrif á: | Maímónídes, Tómas af Aquino |
Averróes (arabíska: ابوالوليد محمد بن احمد بن محمد بن رشد, Abū l-Walīd Muhammad ibn Ahmad ibn Muhammad ibn Rushd; einnig Averroes eða Averrhoës eða einfaldlega Ibn Rushd) (1126 – 11. desember 1198) var spænsk-marokkóskur heimspekingur, læknir, lögfræðingur og guðfræðingur.
Ásamt Avicenna er Averróes sá sem helst ber að þakka fyrir varðveislu þekkingar á mörgum af ritum fornaldar. Hann skrifaði handbók í læknisfræði og útleggingar á nær öllum ritum Aristótelesar. Hann reyndi að samræma heimspeki og íslam og taldi að heimspeki og trúarbrögð væru ekki andstæður heldur væri hægt að leita sannleikans fyrir tilstilli beggja.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða] Þetta æviágrip sem tengist sagnfræði og heimspeki er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.