Arete frá Kýrenu
Útlit
Arete frá Kýrenu (4. öld f.o.t.) var dóttir Aristipposar frá Kýrenu, lærisveins Sókratesar. Nafn hennar þýðir „dygð“ eða „ágæti“. Hún er stundum talin hafa tekið við af föður sínum sem höfuð skóla Kýreninga en í raun er ekki vitað hvort Aristippos faðir hennar eða dóttursonur hans — sem einnig hét Aristippos frá Kýrenu — stofnaði skólann. Engu að síður kann að vera ástæðulaust að hafna því að Arete hafi sjálf verið heimspekingur. Sonur hennar var kallaður „hinn móðurmenntaði“ (forngríska: μητροδίδακτος), að því er virðist af því að helsti kennari hans í heimspeki hafi verið móðir hans, Arete.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Arete of Cyrene“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 2. janúar 2006.