Analsím
Útlit
Analsím er algengt og auðþekkjanlegt á kristalforminu og sterkum glergljáa.
Lýsing
[breyta | breyta frumkóða]Analsím finnst sem aðskildir kristalar eða liggja saman í klösum. Stærðin 0,2-0,5 cm.
- Efnasamsetning: NaAlSi2O6 • H2O
- Kristalgerð: kúbísk
- Harka: 5-5½
- Eðlisþyngd: 2,22-2,63
- Kleyfni: ógreinileg
Útbreiðsla
[breyta | breyta frumkóða]Algeng og finnst í ólivínbasalti. Finnst sem analsímbelti í blágrýtisfjöllunum á Íslandi.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Kristján Sæmundsson og Einar Gunnlaugsson (1999) Íslenska steinabókin. ISBN 9979-3-1856-2