18 (tala)
Útlit
18 er náttúruleg tala. Talan á 18 kemur á eftir 17 og á undan 19. Með rómverskum tölum er hún skrifuð: XVIII eða xviij. Talan átján er á íslensku oft haft um marga, sbr. einn af átján: einn af mörgum (slæmum). Sú merking kemur t.d. fram í kvæði Hettu tröllkonu í Bárðar sögu Snæfellsáss:
- Út reri einn á báti
- Ingjaldr í skinnfeldi.
- Týndi átján önglum
- Ingjaldr í skinnfeldi
- og fertugu færi
- Ingjaldr í skinnfeldi.
- Aftr komi aldrei síðan
- Ingjaldr í skinnfeldi.
Einnig er oft talað um átján barna föður í álfheimum, með vísan til þjóðsögunnar um umskiptinginn í barnslíki, sem var reyndar eiginmaður álfkonu, og mælti:
Nú em eg svo gamall sem á grönum má sjá, átján barna faðir í álfheimum, og hef eg þó aldrei séð svo langan gaur í svo lítilli grýtu.