Ómar Ragnarsson - Ég er að baka
Ég er að baka | |
---|---|
SG - 504 | |
Flytjandi | Ómar Ragnarsson |
Gefin út | 1965 |
Stefna | Barnalög |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Hljóðdæmi | |
Ómar Ragnarsson er 45 snúninga hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1965. Á henni syngur Ómar Ragnarsson fjögur barnalög.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Ég er að baka - Lag - texti: E. Shuman, B. Bower - Ómar Ragnarsson
- Ligga ligga lá - Lag - texti: Ómar Ragnarsson
- Sumar og sól - Lag - texti: Ómar Ragnarsson
- Lok lok og læs - Lag - texti: Brezkt þjóðlag - Ómar Ragnarsson
Textabrot af bakhlið plötuumslags
[breyta | breyta frumkóða]Það eru orðin nokkur ár síðan barnaplata kom út síðast hér á landi, þessvegna fagna allir þessari skemmtilegu plötu, sem Ómar Ragnarsson sendir frá sér.
Ómar hefur litlu krakkana sérstaklega í huga, en auðvitað hafa allir krakkarnir alltaf gaman af barna-plötum. Fyrsta lagið er um litla stelpu, sem situr úti í porti heima hjá sér og segist vera að baka, lítill strákur fer að setja út á baksturinn, en hún ansar því ekki, heldur bakar og bakar. Næsta lag samdi Ómar utan um setninguna Ligga ligga lá, sem börnin nota oft. Í þessum texta kemur Ómar víða við. Þriðja lagið er auðvitað um sumarið og sólina,, eins og nafnið ber með sér, lag, sem hentar vel yngstu börnunum, því það er sumar í hjörtum þeirra allt árið um kring. Síðasta lagið segir frá tveimur strákum, sem eru að rífast, en sættast svo eins og vera ber í niðurlagi lagsins. Og þá er að setja plötuna á fóninn og hlusta á lögin. |
||