Fit (prjónaskapur)
Útlit
(Endurbeint frá Uppfitjun)
Fit er notað í prjónaskap um uppfitjun, þegar búnar eru til nýjar lykkjur, þá er fitjað upp á einhverju úr garni og er það þá fyrsti prjónninn. Einnig munu margir kalla slétta og brugðna kaflann á sokkum og vettlingum fit en sá kafli er einnig kallaður brugðningur, snúningur, stroff, stuðlaprjón og stuðull.
Greint er á milli nokkurra gerða af fitjum. Einföld fit er hundafit sem einnig er nefnd hænsnafit, skólafit eða húsgangsfit. Halldórufit er kennd við Halldóru Bjarnadóttur sem kenndi nýja uppfitjun. Einnig eru dæmi um breiðafit, skollafit, gullfit og silfurfit.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Orð vikunnar Fit Geymt 25 júní 2013 í Wayback Machine
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Uppfitjun
- Fitjað upp og fella af Geymt 5 mars 2016 í Wayback Machine