Tíminn flýgur
Útlit
(Endurbeint frá Tempus fugit)
Tíminn flýgur (Latína tempus fugit, sem þýðir „tíminn flýr“, en er oftast þýtt sem „tíminn flýgur“) er latneskt orðatiltæki, oft ritað á úrskífur. Var fyrst notað í 284. erindi þriðju bókar Búnaðarbálks, Virgils: Sed fugit interea fugit irreparabile tempus, sem þýða mætti sem „en hann flýr á meðan, óbætanlegur týminn flýr“.
Orðtakið er oft notuð í talmáli í merkingunni: „nú líður óafturkræfur tími“, sem gefur til kynna að verið sé að eyða þeim tíma sem maðurinn hefur til umráða af lífi sínu.
Wikivitnun er með safn tilvitnana á síðunni Tíminn flýgur.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Safn rita eftir Virgil, á latínu. Hægt er að sjá tempus fugit undir Búnaðarbálki (GEORGICON), í bók þrjú (Liber III)
- Þriðja bók Búðaðarbálks á latínu. (Virgill, Búnaðarbálkur, Bók III.)
- Textinn á latínu (sjá má enskar þýðingar ef maður ýtir á orðin). (Virgill, Búnaðarbálkur, Bók III, erindi 284)
- Textinn á ensku. (Virgill, Búnaðarbálkur, Bók III, erindi 284.)
- Ljóð eftir Walter Ralegh á enskri bókmenntasíðu.