Lapsang souchong
Útlit
Lapsang souchong (kínverska: 拉普山小種; pinyin: lāpǔshān xiǎozhǒng; bókstaflega „undirtegund frá Lapu-fjalli“) er tegund af svörtu tei sem á rætur sínar að rekja til svæðisins Wuyi í héraðinu Fujian í Kína. Lapsang souchong er ólíkt öðrum tetegundum því það er þurkað/reykt yfir brennandi furuviði. Þannig öðlast teið reykbragð. Í Kína er lapsang souchong talið „te fyrir Vesturlandabúa“.
Orðið „souchong“ á við fjórðu og fimmtu laufblöðin á plöntunni, sem eru lengri frá því æskilegri brumi teplöntunnar. Þessi laufblöð eru grófari en þau sem eru nálægari bruminu og innihalda minna magn af ilmefnasamböndum. Reyking á þessum blöðum gerir þau söluhæfari.
Samkvæmt sumum heimildum var lapsang souchong fyrsta svarta teið sem kynnt var til sögunnar.