Fara í innihald

Sjálfseignastofnunin Amtmannssetrið á Möðruvöllum

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Amtmannssetrið á Möðruvöllum er sjálfseignastofnunin sem vinnur að endurreisn merkra bygginga á Möðruvöllum í Hörgárdal og kynningu á sögu staðarins.

Saga og markmið

[breyta | breyta frumkóða]

Sjálfseignastofnunin Amtmannssetrið á Möðruvöllum var sett á fót 1. mars 2006. Megintilgangur hennar er að endurreisa merkar byggingar á Möðruvöllum í Hörgárdal og að koma á framfæri sögu staðarins á lifandi hátt með því að skapa aðlaðandi og frjótt umhverfi fyrir skóla, námsfólk og ferðamenn sem áhuga hafa á stjórnmála-, menningar- og kirkjusögu, náttúruvísindum og landbúnaði.

Stofnendur Amtmannssetursins eru; Landbúnaðarháskóli Íslands, Arnarneshreppur, Möðruvallaklausturskirkjusókn og Prestssetrasjóður.

Uppbygging Amtmannssetursins hefur einkum verið fjármögnuð af ríki og sveitarfélögum ásamt félögum og fyrirtækjum sem vilja styrkja atvinnu- og menningarstarfssemi á Eyjafjarðarsvæðinu.

Uppbyggingunni er skipt upp í fjóra vel afmarkaða áfanga sem hver getur staðið sjálfstætt rekstrarlega. Fyrsti áfanginn var uppbygging Leikhússins sem lauk með víglsu hússins 26. maí 2007 og fer þar nú fram margvísleg menningartengd starfssemi.

Leikhúsið á Möðruvöllum

[breyta | breyta frumkóða]

Amtmannssetrið á Möðruvöllum á og rekur Leikhúsið að Möðruvöllum sem er 120 fermetra hús byggt árið 1881. Þar er minjasafn um Möðruvallaskóla og sögu staðarins en einnig er þar rekið félags- og safnaðarheimili.

Í stjórn Amtmannssetursins (2011) sitja; Davíð Stefánsson ráðgjafi, Reykjavík (formaður). Halla Björk Þorláksdóttir kennari, Baldursheimi. Jón Þór Brynjarsson, Hjalteyri.

Framkvæmdastjóri er Þóroddur Sveinsson á Möðruvöllum.