Amöbur
Útlit
(Endurbeint frá Amaba)
Amöbur [1] (eða Ömbur [2]) eru einfrumungar í fylkingu slímdýra af ríki frumdýra.
Þær eru meðal stærstu einfrumunga og líkt og önnur slímdýr hreyfa þær sig úr stað með því að teygja bungu eða totu á frumuhimnuna, sem þær fylla jafnskjótt af umfrymi og kallast þessi útskot skinfætur.
Þótt amöbur séu sér tegundir innan fylkingar slímdýra, þá eru slímdýr oft kölluð amöbur, jafnvel af fræðimönnum, sem getur valdið nokkrum ruglingi.[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ et. amaba
- ↑ et. amba
- ↑ Orðið „Amöbur“ á Orðabanka íslenskrar málstöðvar
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Amöbur.