Þorfinnur karlsefni
Útlit
Þorfinnur karlsefni frá Reynistað í Skagafirði var íslenskur landkönnuður sem nam land á Vínlandi ásamt konu sinni Guðríði Þorbjarnardóttur. Helstu heimildir um Þorfinn eru Grænlendinga saga og Eiríks saga rauða. Þar eignuðust þau son sinn Snorra Þorfinnsson og var hann talinn fyrsta hvíta barnið sem fæddist í Ameríku. Ekki er vitað hvar þau numu land en talið er að það gæti verið nálægt L'Anse aux Meadows. Einar Jónsson, myndhöggvari, gerði styttu af Þorfinni sem er í Philadelphia í Bandaríkjunum.
Þorfinnur og Guðríður fluttust til Íslands og settust fyrst að á föðurleifð Þorfinns á Reynistað en bjuggu síðar í Glaumbæ.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Eiríks saga rauða
- Grænlendinga saga
- Biography at the Dictionary of Canadian Biography Online
- Vínland Þorfinns karlsefnis og Guðríðar Þorbjarnardóttur, Lesbók Morgunblaðsins 5. maí 2001
- Vefsíða um Þorfinn unnið af nemendum FVA[óvirkur tengill]
- Grein um Þorfinn á vefnum Britannica
- Tillaga til þingsályktunar - um kynningu á Guðríði Þorbjarnardóttur.