John McCain
John McCain | |
---|---|
Öldungadeildarþingmaður fyrir Arizona | |
Í embætti 3. janúar 1987 – 25. ágúst 2018 | |
Forveri | Barry Goldwater |
Eftirmaður | Jon Kyl |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 29. ágúst 1936 Coco Solo, Panamaskurðsvæðinu, Bandaríkjunum (nú Panama) |
Látinn | 25. ágúst 2018 (81 árs) Cornville, Arizona, Bandaríkjunum |
Þjóðerni | Bandarískur |
Stjórnmálaflokkur | Repúblikanaflokkurinn |
Maki | Carol Shepp (g. 1965; d. 1980) Cindy Hensley (g. 1980) |
Börn | 7 |
Háskóli | Flotaháskóli Bandaríkjanna |
Undirskrift |
John Sidney McCain III (29. ágúst 1936 – 25. ágúst 2018) var forsetaframbjóðandi repúblikana í forsetakosningunum 2008 og öldungardeildarþingmaður fyrir Arizona fylki. Hann beið lægri hlut fyrir Barack Obama, frambjóðanda Demókrata.
McCain var í bandaríska sjóhernum þegar Bandaríkjamenn tóku þátt í Víetnamstríðinu. Í stríðinu var hann tekinn sem stríðsfangi og þurfti að þola hryllilegar pyntingar. McCain var kjörinn þingmaður í öldungadeildinni árið 1986. Hann gaf kost á sér til embættis forseta Bandaríkjanna árið 2000 en varð undir í forkosningaslag fyrir George W. Bush, sem var síðar kjörinn forseti.
John McCain hlaut útnefningu sem forsetaefni Repúblikanaflokksins 4. mars 2008 - með sigri í Texas, Vermont, Rhode Island og Ohio náði hann lágmarkinu, 1.191 þingfulltrúa. Í lok ágúst 2008 tilnefndi hann Söruh Palin sem varaforsetaefni sitt.
Hefði McCain náð kjöri hefði hann á þeim tíma orðið elsti maður til að setjast í embætti forseta Bandaríkjanna, þá orðinn 72 ára gamall. Joe Biden, sem varð forseti árið 2021, hefur þó síðan þá tekið við embætti á hærri aldri.