365 miðlar
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. Aðalvandamál þessarar greinar: þarf að uppfæra eignarhald og fleiri breytingar |
365 miðlar er íslenskt fjölmiðla- og þjónustufyrirtæki á sviði blaðaútgáfu, sjónvarps- og útvarpsreksturs og vefmiðlunar. Fyrirtækið rak sex sjónvarpsstöðvar (fyrir utan + og extra stöðvar), þar á meðal Stöð 2, elstu áskriftarstöð landsins; sex útvarpsstöðvar, þar á meðal Bylgjuna, elstu einkareknu útvarpsstöð landsins; Fréttablaðið, vefinn Vísi. Árið 2017 keypti Sýn megnið af fyrirtækinu
Eignarhald
[breyta | breyta frumkóða]Stærsti eigandi A hluta í 365 miðlum var Ingibjörg Pálmadóttir en hún seldi sinn hluta árið 2018.[1]
Nafnabreyting sjónvarpsstöðva 2008
[breyta | breyta frumkóða]Nafnabreyting varð á sjónvarpsstöðvum 365 miðla 13. mars 2008 en þá urðu allar sjónvarpsstöðvar kenndar við Stöð 2 ásamt frekara auðkenni. Þannig fékk Sýn nafnið Stöð 2 Sport, Sýn 2 varð Stöð 2 Sport 2, Sirkus varð Stöð 2 Extra, Fjölvarpið (Endurkast erlendra sjónvarpsstöðva) fékk nafnið Stöð 2 Fjölvarp en Stöð 2 Bíó hélt sínu nafni. Vildarklúbburinn M12 fékk einnig nýtt nafn, Stöð 2 Vild.
Miðlar
[breyta | breyta frumkóða]Sjónvarpsstöðvar
[breyta | breyta frumkóða]- Stöð 2
- Stöð 2+
- Stöð 3
- Krakkastöðin
- Bíóstöðin (áður Stöð 2 Bíó og Bíórásin)
- Gullstöðin (áður Stöð 2 Gull, Stöð 2 Extra og Sirkus)
- Stöð 2 Frelsi
- Stöð 2 Netfrelsi
- Stöð 2 Sport (áður Sýn)
- Stöð 2 Sport+
- Stöð 2 Sport 2 (áður Sýn 2)
- Stöð 2 Sport 3,4,5,6, (áður Sýn Extra)
- Popp TV (áður Nova TV og Skífan TV)
- Stöð 2 Fjölvarp
365 miðlar voru með Fréttastöðina eða NFS frá Október 2005 til September 2006
Útvarpsstöðvar
[breyta | breyta frumkóða]- Bylgjan
- LéttBylgjan (áður Létt 96,7)
- GullBylgjan
- 80s Bylgjan (netútvarp)
- FM957
- FM Extra (netútvarp)
- X-ið 977
- Útvarp Latibær
Prentmiðlar
[breyta | breyta frumkóða]Fréttablaðið er dagblað í frídreifingu. Blaðið hóf göngu sína árið 2001. Þá eru gefin út með Fréttablaðinu ýmis sérblöð ásamt vikulegum blaðhlutum, þar á meðal Markaðurinn.
Vefmiðlar
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Ingibjörg sögð hafa selt annan sinn lut í Sýn Rúv, skoðað 25. apríl, 2019.