Kristín Eiríksdóttir
Kristín Eiríksdóttir (f. 3. nóvember 1981) er íslenskt ljóðskáld og rithöfundur. Hennar fyrsta ljóðabók, Kjötbærinn, sem Bókaútgáfan Bjartur gaf út 2004, vakti mikla athygli og henni fylgdi hún eftir með annarri ljóðabók, Húðlit auðnin, hjá Nýhil 2006, en ljóð eftir hana birtust einnig í safnritinu Ást æða varps sem Nýhil gaf út 2005. Síðan þá hefur hún sent frá sér margskonar ritverk, ljóð, leikrit, smásögur og skáldsöguna Hvítfeld, sem kom út hjá JPV útgáfu árið 2012 og var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna. Árið 2014 sendi Kristín síðan frá sér ljóða- og myndverkabókina Kok sem tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna það ár. Hún hefur einnig skrifað fyrir leikhús, leikritin Karma fyrir fugla ásamt Karí Ósk Grétudóttur, og Kristín Jóhannesdóttir setti upp í Þjóðleikhúsinu 2013, einþáttunginn Skríddu sem Kristín Eysteinsdóttir setti upp í Borgarleikhúsinu 2013 og Hystory sem Sokkabandið setti upp í Borgarleikhúsinu 2015.
Kristín er dóttir Ingibjargar Haraldsdóttur, rithöfundar og þýðanda.
Ritaskrá
[breyta | breyta frumkóða]Ljóð
[breyta | breyta frumkóða]- Kjötbærinn, Bjartur, 2004
- Húðlit auðnin, Nýhil, 2006
- Annarskonar sæla, JPV útgáfa, 2008
- Kok, JPV útgáfa, 2014
Smásagnasöfn
[breyta | breyta frumkóða]- Doris deyr, JPV útgáfa, 2010
Skáldsögur
[breyta | breyta frumkóða]- Hvítfeld - fjölskyldusaga, JPV 2012
- Elín, ýmislegt, JPV 2017
Leikrit
[breyta | breyta frumkóða]- Karma fyrir fugla (ásamt Karí Ósk Grétudóttur), 2013
- Skríddu, 2013
- Hystory, 2015
Þýðingar
[breyta | breyta frumkóða]- Hundshaus, skáldsaga e. Morten Ramsland, Mál og menning, 2007