Edgar Cayce
Útlit
Edgar Cayce (18. mars 1877 – 3. janúar 1945) var bandarískur sjáandi (spámiðill) sem svaraði í dásvefni á miðilsfundum spurningum um lækningar, endurholdgun, stríð, Atlantis og spáði fyrir um óorðna atburði.
Margar bækur um Edgar Cayce hafa komið út á íslensku. Þeirra á meðal eru:
- Upphaf og örlög mannsins.
- Undralæknirinn og sjáandinn. Frásögn um Edgar Cayce sjálfan og starf hans sem sjáanda í miðilsástandi. Þýtt af Lofti Guðmundssyni, gefin út árið 1971
- Svo sem maðurinn sáir. Fjallar um lögmál orsaka og afleiðinga.
- Jesús Kristur í dálestrum Edgar Cayce. Upplýsingar frá Jesú Kristi í dálestrum gegnum Edgar Cayce.
- Draumar skyggni og vitranir.
- Árur. Lítið rit sem útskýrir hvað árulitirnir þýða.
- Heilbrigði njóttu.