Ölgerðin Egill Skallagrímsson
Ölgerðin Egill Skallagrímsson er íslenskur drykkjaframleiðandi, elsta starfandi bruggverksmiðja landsins og heildsala með mat og drykk. Fyrirtækið var stofnað 17. apríl 1913 og framleiðir 45 miljónir lítra af drykkjarvörum árlega. Auk þess að framleiða bjór undir eigin merki, rekur fyrirtækið Borg brugghús sem sérhæfir sig í gerð sælkerabjóra.
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Fyrirtækið var stofnað 17. apríl 1913 af Tómasi Tómassyni sem hóf framleiðslu á maltöli. Í fyrstu fór starfsemi Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar fram í tveimur herbergjum í kjallara Þórshamarshússins við Templarasund í Reykjavík, en þau hafði Tómas tekið á leigu. Í dag er það hús í eigu Alþingis. Ári síðar flutti fyrirtækið í Thomsenshúsið við Tryggvagötu og við það stækkaði athafnasvæðið til muna.
Umsvifin voru ekki mikil í fyrstu. Suðuketillinn var einungis 65 lítrar og flöskunum var lokað með því að þrýsta tappa ofan í þær með flötum lófa og binda fyrir með vír. Fyrsta framleiðsluárið seldi Ölgerðin um 38 þúsund lítra, mest Maltextrakt og Hvítöl. Íbúar Reykjavíkur voru þá um 13 þúsund talsins.
Léttölið Egils Pilsner kom á markað sama ár en áfengisbann gekk í gildi 1915 og eftir það var bannað að framleiða áfengt öl með meira en 2,25% vínandamagn. Gjarnan voru ráðnir bruggmeistarar frá Þýskalandi og Danmörku til að hafa yfirumsjón með ölframleiðslunni, en fyrirtækið fékkst líka við gosdrykkjagerð (sbr. Egils appelsín).
Tómas Tómasson hélt til Kaupmannahafnar árið 1915 til að læra ölgerð við Bryggeriet Stjernen sem og í Þýskalandi. Þar dvaldi hann að mestu næstu tvö árin. Heimkominn árið 1917 festi hann kaup á fyrstu húseigninni við Njálsgötu á reitnum milli Njálsgötu, Frakkastígs og Grettisgötu sem síðar hlaut nafnið „Ölgerðartorfan“, en fyrirtækið var staðsett þar lungann af 20. öldinni. Á árunum 1924-1928 voru tekin í notkun þar bæði ölsuðuhús og gerkjallari.
Næstu árin byggði hann þar upp fullkomið ölgerðarhús og gerjunar- og átöppunaraðstöðu, meðal annars með því að kaupa notaðan tækjabúnað frá Þýskalandi sem var í rjúkandi rúst vegna fyrri heimsstyrjaldarinnar.
Árið 1926 fór sala Ölgerðarinnar í fyrsta sinn yfir milljón flöskur á einu ári. Sama ár kom Kristján X. Danakonungur í opinbera heimsókn til Íslands. Dönsku blaðamennirnir í fylgdarliði konungs kunnu vel að meta Egils Pilsnerinn og drukku hann alla ferðina. Í kjölfarið fékk Ölgerðin rétt til að kalla sig „konunglegt ölgerðarhús“.
Eins og nafn fyrirtækisins gefur til kynna var upphaflega stefnt að ölgerð fyrst og fremst. Eins og áður segir var fyrsta framleiðsluvara Ölgerðarinnar Egils Maltextrakt. Árið 1955 kom appelsínið til sögunnar. Fyrsta aldarfjórðunginn voru ýmsar tilraunir gerðar til að útbúa appelsínugosdrykki, en enginn þeirra átti roð í Sanitas-appelsínið. Þetta olli Ölgerðarmönnum talsverðu hugarangri. Árið 1955 bjó Sigurður Sveinsson, starfsmaður Ölgerðarinnar, til blöndu sem samstundis féll í kramið hjá Íslendingum og hefur upp frá því gnæft yfir aðra slíka drykki. Óvíst er hvort unnt væri að halda íslensk jól án appelsíns og maltöls.
Framleiðsla á Egils Pilsner hófst árið 1917 aðeins fjórum árum eftir stofnum Ölgerðarinnar. Fyrirtækið var það fyrsta sem fékk undanþágu til framleiðslu á áfengu öli á Íslandi á stríðsárunum þegar það framleiddi Polar Ale fyrir breska setuliðið. Frá 1951 framleiddi það Polar Beer fyrir varnarliðið á Keflavíkurstöðinni og síðan Export Beer sem landsmenn kölluðu almennt Egil sterka. Eftir að bjórbanninu var aflétt 1989 hefur aðalsöluvara bruggverksmiðjunnar verið Egils Gull.
Framleiðsla gosdrykkja hófst árið 1930 er Ölgerðin keypti gosdrykkjaverksmiðjurnar Síríus og Kaldá. Ölgerðin var gerð að hlutafélagi tveimur árum síðar, er hún var sameinuð Ölgerðinni Þór hf., sem þá hafði verið starfrækt í tvö ár. Þór hafði byggt ölgerðarhús við Rauðarárstíg en rekstur þess var lagður niður við sameininguna.
Eftir að Tómas féll frá árið 1978, níræður að aldri, ráku synir hans, Jóhannes og Tómas Agnar, Ölgerðina Egil Skallagrímsson í tæpan aldarfjórðung. Árið 2000 ákváðu þeir að selja hlut fjölskyldunnar og var samið í árslok við Íslandsbanka-FBA, eins og Glitnir hét þá, og fjárfestingarfélagið Gildingu. Eigendaskipti urðu í apríl 2002 er Lind ehf., dótturfélag Danól ehf., keypti Ölgerðina. Rekstur Lindar var sameinaður Ölgerðinni í byrjun árs og við þann samruna jókst vöruúrval Ölgerðarinnar til muna. Árið 2007 keyptu síðan Októ Einarsson og Andri Þór Guðmundsson Ölgerðina ásamt Kaupþingi sem síðar seldi sinn hluta til nokkurra stjórnenda fyrirtækisins.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson framleiðir 45 miljónir lítra af drykkjarvörum árlega, þar af eru 10 milljónir lítra bruggaðar í Ölsuðunni.
Verðlaun
[breyta | breyta frumkóða]Egils Gull hlaut verðlaunin World’s Best Standard Lager á World Beer Awards 2011[1] og Bríó vann verðlaunin German-style Pilsner 2012 á World Beer Cup.[1]
Ár | Verðlaun | Tegund | Vara | Keppni |
---|---|---|---|---|
2006 | Silfur | Egils Gull | Monde Selection | |
2006 | Silfur | Egils Premium | Monde Selection | |
2006 | Gull | Egils Lite | Monde Selection | |
2006 | Brons | Egils Lite | European Beer Star | |
2006 | Silfur | Egils Premium (cans) | European Beer Star | |
2006 | Gull | American-style low-carbohydrate light lager | Egils Lite | World Beer Cup |
2007 | Gull | Egils Gull | Monde Selection | |
2007 | Gull | Egils Premium | Monde Selection | |
2007 | Gull | Egils Lite | Monde Selection | |
2008 | Silfur | Egils Gull | ||
2008 | Gull | Egils Premium | ||
2008 | Gull | Egils Lite | ||
2008 | Gull | Beers, waters, soft drink & other Non- Alcoholic Beverages | Egils Lite (cans) | World Selection |
2008 | Silfur | Lager Brewery Section | Egils Lite | Australian International Beer Awards |
2008 | Silfur | Egils Premium | Australian International Beer Awards | |
2008 | Brons | Egils Lite | Australian International Beer Awards | |
2008 | Gull | Metal Beers, waters, soft drink & other Non- Alcoholic Beverages | Egils Premium (cans) | World Selection |
2010 | Brons | Polar | World Beer Cup | |
2011 | Gull | Floridana Andoxun | The InterBev Awards | |
2011 | Gull | World´s best standard lager | Egill Gull | World Beer Awards |
2012 | Gull | German-style Pilsener (Brio) | Brewers Association | |
2012 | Bestur í Evrópu | Pilsner Lager | BRÍÓ | Worlds Beer Awards |
2012 | Bestur í Evrópu | IPA Pale Beer | Borg Brugghús, Úlfur | Worlds Beer Awards |
2013 | Bestur í Evrópu | Flavoured Beer | Borg Brugghús, Myrkvi | Worlds Beer Awards |
2013 | Evrópu brons | Lager, German Pale | Bríó | Worlds Beer Awards |
2013 | Evrópu silfur | Pale Beer IPA | Borg Brugghús, Úlfur | World Beer Awards |
2013 | Evrópu brons | Lager low carb | Lite | World Beer Awards |
2014 | Gull | Herb and Spice Beer | Snorri | European Beer Star |
2014 | Silfur | Imperial Stout | Garun | European Beer Star |
2014 | Gull | India Pale Ale | Úlfur | Global Craft Beer |
2014 | Gull | Imperial Stout | Garún | Global Craft Beer |
2014 | Gull | Pils | Borg Brugghús, Bríó | Global Craft Beer |
2014 | Silfur | Chocolate or coffee beer | Borg Brugghús, Myrkvi | Global Craft Beer |
2014 | Evrópu silfur | Flavoured Beer Chocolate & coffee | Borg Brugghús, Myrkvi | World Beer Awards |
2014 | Evrópu silfur | Stout & Porter Imperial | Borg Brugghús, Garún | World Beer Awards |
2014 | Silfur | Egils Gull | International -style lager | |
2015 | Gull | Borg Brugghús, Sólveig Nr. 25 | World Beer Awards |
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 Ölgerdin. „Our Export“. Afrit af upprunalegu geymt þann 19 október 2014. Sótt 18. október 2014.