Íþróttafélagið Mílan
Íþróttafélagið Mílan er íþróttafélag á Selfossi og leikur handknattleik í 1. deild tímabilið 2017/18.
Íþróttafélagið Mílan | |||
Fullt nafn | Íþróttafélagið Mílan | ||
Gælunafn/nöfn | Mílan | ||
---|---|---|---|
Stofnað | 17. júlí, 2014 | ||
Völlur | Vallaskóli | ||
Fjöldi sæta | 820 | ||
Þjálfari | Örn Þrastarson | ||
Deild | 1. deild | ||
2016/17 | 12. sæti | ||
|
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Stofnun félagsins
[breyta | breyta frumkóða]17. júlí var haldinn á Selfossi stofnfundur hjá nýju íþróttafélagi. Félagið ber heitið Íþróttafélagið Mílan og hefur handknattleik á stefnuskrá sinni.
Á stofnfundi ÍF Mílan var kosin stjórn félagsins en hana skipa Birgir Örn Harðarson, formaður, Eyþór Jónsson, gjaldkeri og Örn Þrastarson, Aron Valur Leifsson og Atli Kristinsson, meðstjórnendur.
Fyrst um sinn verður bara starfræktur meistaraflokkur karla en um þrjátíu einstaklingar eru nú þegar í hópnum. Félagarnir ætla sjálfir að standa undir kostnaði við æfingar og þjálfun en stefnt er að því að æfa 2–3 í viku. Heimavöllur liðsins verður í Vallaskóla á Selfossi. Liðið hyggst þó spila einhverja leiki á öðrum handboltavöllum á Suðurlandi eins og t.d. Hellu, Hvolsvelli og Laugarvatni. Búningur liðsins verður græn treyja og hvítar buxur.
[1]
Fyrsta tímabilið
[breyta | breyta frumkóða]ÍF. Mílan fékk leyfi frá ÍSÍ til að leika handknattleik í 1. deild tímabilið 2014/15. Fyrsti opinberi leikur liðsins var laugardaginn 20. september 2014 gegn Hamrarnir. Magnús Már Magnússon hlaut þann heiður að skora fyrsta opinbera mark ÍF. Mílan. leikurinn endaði með öruggum sigri Mílan 21-15(9-7).[2]
Eyvindur Hrannar Gunnarsson varð fyrstur leikmanna ÍF. Mílan til að fá rautt spjald í leik gegn ÍH sem tapaðist 24-23(12-13) í Kaplarika 26. september 2014.
8. febrúar 2015 spilaði ÍF. Mílan við KR og gerðu liðin jafntefli 27-27(13-13). Í leiknum setti Örn Þrastarson markamet fyrir ÍF. Mílan í einum leik þegar hann skoraði 14 mörk.
ÍF. Mílan lauk sínu fyrsta tímabili með sigri á ÍH 22-31 Í Kaplakrika sem skilaði liðinu 7 sæti í 1. deild karla með 10 stig. En liðinu var spáð 8 sæti í spá fyrirliða, þjálfara og formanna liðanna í 1.deild.
Á stjórnarfundi ÍF. Mílan 28. apríl 2015 var kosin ný stjórn félagsins en hana skipa Birgir Örn Harðarson, formaður, Eyþór Jónsson, gjaldkeri, Atli Kristinson, Leifur Örn Leifsson, Marinó Geir Lilliendahl og Örn Þrastarson, meðstjórnendur.
Annað tímabilið í 1. deild karla
[breyta | breyta frumkóða]ÍF. Mílan hóf sitt annað tímabil í 1. deild karla með sigri á Fjölni 24-22 í Vallaskóla föstudagskvöldið 18. september 2015. Í leiknum jafnaði Atli Kristinsson markamet ÍF. Mílan í einum leik þegar hann skoraði 14 mörk. Mílan spilaði sinn fyrsta bikarleik í sögu félagsins mánudagskvöldið 26. október 2015. í 32-liða úrslitum gegn Fjölni. Liðið tapaði leiknum 22-27. ÍF. Mílan endaði í 6 sæti á sínu öðru tímabili í 1.deild karla með 13 stig. Atli Kristinsson var annað tímabilið í röð markahæstur með 99 mörk þrátt fyrir að spila einungis 11 af 21 leik liðsins.
Þriðja tímabil í 1. deild karla
[breyta | breyta frumkóða]Mílan hóf tímabilið í 1. deild karla á því að gera jafntefli við ÍR 22-22. Næst leikur liðsins var gegn Hömrunum sem vannst 30-27. Liðið hinsvegar tapaði næstu 20 leikjum og enduðu neðstir í 1. deild karla með 3 stig í 12 sæti. Atli Kristinsson varð markahæstur þriðja árið í röð með 77 mörk í 11 af 22 leikjum liðsins. Eyþór Jónsson varð leikjahæsti leikmaður Mílan á tímabilinu með því að spila sinn 55 leik.
Handknattleiksdeild
[breyta | breyta frumkóða]Leikmenn Meistaraflokks
[breyta | breyta frumkóða](Síðast uppfært 29. október, 2015)
- Markmenn
- Hornamenn
- 3 Gísli Guðjónsson
- 5 Atli Marel Vokes
- 17 Ársæll Einar Ársælsson
- 18 Birgir Örn Harðarson
- 19 Róbert Daði Heimisson
- 20 Leifur Örn Leifsson
- 22 Eyþór Jónsson
- 23 Guðmundur Garðar Sigfússon
- 24 Einar Sindri Ólafsson
- 25 Ketill Heiðar Hauksson
- 33 Marinó Geir Lilliendahal
- 34 Sævar Ingi Eiðsson
- 44 Jóhannes Snær Eiríksson
- Línumenn
- Útispilarar
Stjórn ÍF. Mílan
[breyta | breyta frumkóða]- Forseti
- Birgir Örn Harðarson
- Varaformaður
- Örn Þrastaron
- Gjaldkeri
- Eyþór Jónsson
- Ritari
- Sigurþór Þórsson
- Meðstjórnendur
- Atli Kristinsson
- Marinó Geir Lilliendahl
Liðstjórn ÍF. Mílan
[breyta | breyta frumkóða]- Þjálfarar
- Örn Þrastarson
- Aðstoðarþjálfari
- Sebastian Popovic Alexandersson
- Liðstjóri
- Sigurþór Þórsson
- Sjúkraþjálfarar
- Árni Steinn Steinþórsson
Verðlaunahafar á Lokahófi
[breyta | breyta frumkóða]Lokahóf 2015
[breyta | breyta frumkóða]Verðlaun | Verðlaunahafar |
---|---|
Leikmaður ársins | Eyvindur Hrannar Gunnarsson |
Sóknarmaður ársins | Örn Þrastarson |
Varnarmaður ársins | Eyvindur Hrannar Gunnarsson |
Bjartasta vonin | Árni Felix Gíslason |
Mark ársins | Örn Þrastarson |
Félagi ársins | Birgir Örn Harðarson |
Liðstjóri ársins | Sigurþór Þórsson |
Harðasti leikmaður ársins | Rúnar Hjálmarsson |
Markmaður ársins | Ástgeir Rúnar Sigmarsson |
Bestur í þjöppu | Guðbjörn Tryggvason |
Atvik ársins | Guðbjörn Tryggvason |
Bestur í fótbolta í upphitun | Bogi Pétur Thorarensen |
Mesta beljan | Leifur Örn Leifsson |
Lokahóf 2016
[breyta | breyta frumkóða]Verðlaun | Verðlaunahafar |
---|---|
Leikmaður ársins | Ástgeir Rúnar Sigmarsson |
Sóknarmaður ársins | Atli Kristinsson |
Varnarmaður ársins | Sigurður Már Guðmundsson |
Þjálfari ársins | Sebastian Popovic Alexandersson |
Bjartasta vonin | Magnús Öder Einarsson |
Mark ársins | Guðbjörn Tryggvason |
Félagi ársins | Birgir Örn Harðarson |
Liðstjóri ársins | Sigurþór Þórsson |
Harðasti leikmaður ársins | Gunnar Ingi Jónsson |
Markmaður ársins | Ástgeir Rúnar Sigmarsson |
Bestur í þjöppu | Sigurður Már Guðmundsson |
Atvik ársins | Ibizaferð félagsins |
Bestur í fótbolta í upphitun | Einar Sindri Ólafsson |
Mesta beljan | Ómar Vignir Helgason |
Lokahóf 2017
[breyta | breyta frumkóða]Verðlaun | Verðlaunahafar |
---|---|
Leikmaður ársins | Atli Kristinsson |
Sóknarmaður ársins | Atli Kristinsson |
Varnarmaður ársins | Sigurður Már Guðmundsson |
Bjartasta vonin | Hlynur Steinn Bogason |
Félagi ársins | Birgir Örn Harðarson |
Liðstjóri ársins | Sigurþór Þórsson |
Harðasti leikmaður ársins | Ómar Vignir Helgason |
Markmaður ársins | Hermann Guðmundsson |
Bestur í fótbolta í upphitun | Bogi Pétur Thorarensen |
Mesta beljan | Hermann Guðmundsson |
Lokahóf 2018
[breyta | breyta frumkóða]Verðlaun | Verðlaunahafar |
---|---|
Leikmaður ársins | Páll Dagur Bergsson |
Sóknarmaður ársins | Páll Dagur Bergsson |
Varnarmaður ársins | Ómar Vignir Helgason |
Bjartasta vonin | Hannes Höskuldsson |
Félagi ársins | Birgir Örn Harðarson |
Þjálfari ársins | Sigurþór Þórsson |
Liðstjóri ársins | Sigurþór Þórsson |
Harðasti leikmaður ársins | Ómar Vignir Helgason |
Markmaður ársins | Hermann Guðmundsson |
Mark ársins | Jóhannes Snær Eiríksson |
Bestur í fótbolta í upphitun | Einar Sindri Ólafsson |
Mesta beljan | Hermann Guðmundsson |
Bestur í þjöppu | Hermann Guðmundsson |
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Guðmundur Karl. „IF Milan“, Sunnlenska, 14.09.2014, skoðað þann 21.09.2014.
- ↑ Guðmundur Karl. „Mílan sigraði í fyrsta leik“, Sunnlenska, 21.09.2014, skoðað þann 22.09.2014.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Heimasíða félagsins Geymt 29 apríl 2015 í Wayback Machine
- Facebooksíða félagsins
|