Bjarnarkló
Bjarnarkló | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Heracleum mantegazzianum Sommier & Levier |
Bjarnarkló eða tröllahvönn (fræðiheiti: Heracleum mantegazzianum)[1] er stórvaxin sveipjurt sem upprunnin er í Kákasus og Mið-Asíu. Jurtin getur orðið 2-5 m há og stundum allt að 7 m. Bjarnarkló líkist venjulegri hvönn nema er miklu stórvaxnari.
Bjarnarkló er fjölær og fjölgar sér með fræjum. Blómin eru hvít og eru blómsveipirnir allt að 80 sm í þvermál.
Bjarnarkló er talin til ágengra tegunda. Hún hefur verið flutt inn til Evrópu sem skrautplanta en breiðst út í náttúrunni og myndað þéttar breiður þar sem skilyrði eru góð. Bjarnarkló er algeng meðfram árbökkum í Bretlandi. Hún var kynnt í Frakklandi á 18. öld og var þá vel tekið af býræktendum.
Bjarnarkló myndar eiturefni þannig að safi af bjarnarkló getur valdið bruna á hörundi í sólarljósi eða í UV-geislum. Húðin verður rauð og klæjar undir, en í alvarlegri tilfellum getur hún valdið 2 stigs brunasár. Börn ættu ekki að vera á svæðum þar sem bjarnarkló vex og nota ætti hlífðarfatnað (líka hlífðargleraugu) ef þarf að grafa upp eða flytja slíkar plöntur. Ef húð kemst í snertingu við safa bjarnarklóar þá á að þvo húðsvæðið vel með sápu og vatni og forðast sólarljós í nokkra daga og leita til læknis.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Orðið „Bjarnarkló“ á Orðabanka íslenskrar málstöðvar úr orðasafninu „Plöntuheiti“:
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Tröllahvönn (Flóra Íslands)
- Risahvannir í íslenskri náttúru (Náttúrufræðistofnun) Geymt 9 ágúst 2012 í Wayback Machine
- Identifying and removing Giant hogweed Geymt 3 september 2009 í Wayback Machine on NetRegs.gov.uk
- InvadingSpecies.com - advice from Ontario, Canada Geymt 16 janúar 2009 í Wayback Machine
- Contact-Poisonous Plants of the World Geymt 2 júlí 2010 í Wayback Machine
- Photos of Giant Hogweed Geymt 2 nóvember 2017 í Wayback Machine
- Manual for eradication of Giant Hogweed - available for download as pdf Geymt 25 júní 2006 í Wayback Machine
- Environment Agency of Finland: Photo of the blisters caused by the plant (Graphic) Geymt 6 febrúar 2012 í Wayback Machine