John Wayne Gacy
Útlit
John Wayne Gacy (17. mars 1942 – 10. maí 1994) var bandarískur raðmorðingi. Hann var sakfelldur og tekinn af lífi fyrir nauðgun og morð á 33 drengjum en 29 þeirra hafði hann grafið undir húsinu þar sem hann bjó. Hinir fjórir fundust í nálægum ám, allt frá frá árinu 1972 og þar til hann var handtekinn árið 1978.
John Wayne Gacy fékk viðurnefnið „morðtrúðurinn“, þar eð hann klæddist ávallt trúðabúningi og var með andlitsmálningu í mörgum veislum sem hann hélt fyrir vini og nágranna. Þar skemmti hann börnum undir viðurnefninu „Trúðurinn Pogo“. John Wayne Gacy komst í heimsmetabók Guinness fyrir lengsta dóm sem nokkur raðmorðingi hefur fengið, en hann var dæmdur í 21 samfellt lífstíðarfangelsi og hlaut 12 dauðadóma.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „John Wayne Gacy“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 18. október 2007.