Hjálpardýrlingar

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hjálpardýrlingarnir með einkennum sínum.

Hjálpardýrlingar eru 14 dýrlingar sem hafa þótt sérstaklega góðir til áheita í kaþólsku kirkjunni, sérstaklega gegn ýmsum sjúkdómum. Sameiginleg dýrkun þeirra er talin eiga sér uppruna í Rínarlöndum á tímum svarta dauða á 15. öld.

Hjálpardýrlingarnir[breyta | breyta frumkóða]

Nafn Messudagur Vernd
Akakíos 7. maí Gegn höfuðverk
Heilög Barbara 4. desember Gegn hita og bráðum dauða, gegn eldingum og eldi og gegn banaslysum við vinnu; verndardýrlingur byggingameistara, fallbyssuliða og námamanna.
Heilagur Blasíus 3. febrúar Gegn veikindum í hálsi og húsdýrum til verndar
Katrín frá Alexandríu 25. nóvember Gegn bráðum dauða og veikindum í tungu; verndardýrlingur heimspekinga, guðfræðinga, ungmeyja, námsmeyja, predikara, hinna deyjandi, hjólsmiða, vélsmiða, vélvirkja, leirkerasmiða og annarra sem vinna með hjól; námsmenn, ræðumenn, predikarar og lögfræðingar heita á hana fyrir vísdómsráð og mælsku
Heilagur Kristófer 25. júlí Gegn kýlapest og til verndar á ferðalögum
Kyríakus 8. ágúst Gegn freistingum á dauðastund, augnsjúkdómum og andsetningum djöfla
Denis 9. október Gegn höfuðverk og andsetningum djöfla
Erasmus 2. júní Gegn veikindum í innyflum, magaveiki, húsdýrum til verndar; verndardýrlingur sjómanna
Evstasíus 20. september Gegn ósætti í fjölskyldum, gegn eldi (tímabundnum og eilífum), verndardýrlingur veiðimanna og allra sem standa frammi fyrir vandræðum
Heilagur Georg 23. apríl Fyrir heilsu húsdýra, gegn frunsum; verndardýrlingur hermanna
Egedíus einsetumaður 1. september Gegn kýlapest, flogaveiki, geðveiki og martröðum, fyrir góða játningu; verndardýrlingur krypplinga, betlara, járnsmiða og mæðra með börn á brjósti
Margrét frá Antiokkíu 20. júlí Verndardýrlingur kvenna í fæðingu, gegn bakverk og til að sleppa frá djöflum
Heilagur Pantaleon 27. júlí Verndardýrlingur lækna og ljósmæðra; fyrir vernd húsdýra og gegn krabbameini og berklum
Vítus 15. júní Gegn flogaveiki, rykkjabrettum, eldingum og dýrabiti (sérstaklega eitruðu), og stormum, og fyrir vernd húsdýra