Söngtríóið Þrír háir tónar (1967)
Útlit
(Endurbeint frá GEOK 258)
Söngtríóið Þrír háir tónar | |
---|---|
GEOK 258 | |
Flytjandi | Söngtríóið Þrír háir tónar |
Gefin út | 1967 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Tónaútgáfan |
Söngtríóið Þrír háir tónar er 45-snúninga hljómplata gefin út af Tónaútgáfunni árið 1967. Á henni flytur Söngtríóið Þrír háir tónar fjögur lög. Platan er hljóðrituð í Mono. Ljósmynd og hönnun: Matthías Gestsson Prentun umslags: Valprent hf. Akureyri.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Siglum áfram. - lag - texti: Neggetti, Stokey - Friðrik G. Þorleifsson
- Haustljóð - lag - texti: Zulu - Friðrik G. Þorleifsson
- Heimþrá - lag - texti: Brian Wilson - Jóhannes úr Kötlum
- Útilegumenn - - lag - texti: Negetti, Stokey - Friðrik G. Þorleifsson
Textabrot af bakhlið plötuumslags
[breyta | breyta frumkóða]Fyrir um það bil einu ári hófu þrír ungir menn, Arnmundur Backmann, Örn Gústafsson og Friðrik G. Þorleifsson að syngja og leika saman. Arnmundur og Örn leika á guitara og Fridrik á bassa. Þeir félagar fluttu aðallega þjóðlög og ýmis sönglög í léttum dúr. Þá kölluðu þeir sig Rím tríó. Rím tríóið hefur komið fram á skemmtistöðum víða um landið og hvarvetna vakið athygli fyrir samstilltan og góðan söng og skemmtilegt lagaval. Á síðastliðnu hausti var ákveðið ad fá piltana til að syngja og leika inn á hljómplötu. Þá ákváðu þeir að skipta um nafn, nú heita þeir Söngtríóið þrír háir tónar. | ||
— NN
|