Endir og upphaf
Útlit
Endir og upphaf er ljóðabók eftir pólsku skáldkonuna Wislöwu Szymborska í þýðingu Geirlaugs Magnússonar en hann ritaði einnig formála.
Wislawa Szymborska hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1996. Bókin kom út árið 1999 og var gefin út af Bjarti. Þýðingarsjóður styrkti útgáfuna. Hönnun kápu var í höndum Snæbjörns Arngrímssonar.