Eldgosið í Eyjafjallajökli 2010
Útlit
Eldgosið í Eyjafjallajökli 2010 hófst snemma að morgni 14. apríl 2010 og stóð til 23. maí sama ár. Gosið var í toppgíg Eyjafjallajökuls og kvikan bræddi ísinn sem er við gíginn. Stórt flóð rann norður um Gígjökul og út í Markarfljót. Flóð varð einnig í Svaðbælisá undir Eyjafjöllum.
Strax um morguninn var gossprungan orðin 2 km að lengd og teygði sig frá norðri til suðurs. Stór sigdæld myndaðist kringum gíginn og fór stækkandi. Þá var gosmökkurinn kominn í 22 þúsund feta hæð um hálf-ellefuleytið.[1]
Gosaska dreifðist um alla Evrópu og olli miklum truflunum á flugumferð, en flugsamgöngur stöðvuðust dögum saman í mörgum ríkjum. Öskumistur gerði oft á Suðurlandi næstu árin vegna fokösku.
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Sigdæld myndast í jöklinum“. 14. apríl 2010.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Eldgosið í Eyjafjallajökli 2010.
- Myndir og vefmyndavélar
- Vefmyndavél á Þórólfsfelli
- Vefmyndavél hjá Hvolsvelli
- Myndir, Veðurstofan
- Myndir, Jarðvísindastofnun
- Skýringar
- Eldgos í Eyjafjallajökli Jarðvísindastofnun
- Eyjafjallajokull Southern Iceland Geymt 2 mars 2021 í Wayback Machine, Smithsonian Institute, Weekly Report 7. April-13. April 2010 (á ensku)
- Jarðskjálftar
- Fleiri