Humza Yousaf

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Humza Yousaf
Humza Yousaf árið 2023.
Æðsti ráðherra Skotlands
Í embætti
29. mars 2023 – 7. maí 2024
ÞjóðhöfðingiKarl 3.
ForveriNicola Sturgeon
EftirmaðurJohn Swinney
Persónulegar upplýsingar
Fæddur7. apríl 1985 (1985-04-07) (39 ára)
Glasgow, Skotlandi
StjórnmálaflokkurSkoski þjóðarflokkurinn
MakiGail Lythgoe (g. 2010; sk. 2017)​
Nadia El-Nakla ​(g. 2019)
Börn1
HáskóliHáskólinn í Glasgow
StarfStjórnmálamaður
Vefsíðahumzayousaf.scot/

Humza Haroon Yousaf (f. 7. apríl 1985) er skoskur stjórnmálamaður og fyrrverandi leiðtogi Skoska þjóðarflokksins og æðsti ráðherra Skotlands. Yousaf var kjörinn flokksleiðtogi eftir afsögn Nicolu Sturgeon í mars árið 2023. Hann var áður heilbrigðisráðherra Skotlands í ríkisstjórn Sturgeons.

Æviágrip[breyta | breyta frumkóða]

Yousaf bauð sig fram til embættis leiðtoga Skoska þjóðarflokksins (SNP) eftir að Nicola Sturgeon tilkynnti afsögn sína í febrúar árið 2023. Kosningar um nýjan flokksleiðtoga fóru fram þann 27. mars og Yousaf bar sigur úr býtum með 52 prósent atkvæða gegn 48 prósentum sem fjármálaráðherra Skotlands, Kate Forbes, hlaut.[1][2]

Eftir kjör sitt á leiðtogastól hét Yousaf því að fylgja í fótspor Sturgeon og jafnaðarstefnu hennar.[3] Skoska þingið staðfesti Yousaf sem nýjan æðsta ráðherra Skotlands þann 29. mars. Hann er 37 ára og er þar með yngsti einstaklingurinn sem hefur gegnt embættinu síðan það var stofnað árið 1999. Í sigurræðu sinni eftir leiðtogakjörið hét Yousaf því að kynslóð hans yrði sú sem myndi færa Skotlandi sjálfstæði.[4]

Yousaf tilkynnti afsögn sína sem æðsti ráðherra og leiðtogi SNP þann 29. apríl 2024 þegar lagðar höfðu verið fram tvær vantrauststillögur gegn honum á skoska þinginu.[5] Hann hafði áður tekið ákvörðun um að rjúfa samstarf SNP við skoska Græningja, sem höfðu í kjölfarið hætt stuðningi við Yousaf.[6]

Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]

  1. Óli Valur Pétursson (27. mars 2023). „Humza Yousaf nýr leiðtogi Skoska þjóðarflokksins“. Fréttablaðið. Afrit af upprunalegu geymt þann 29. mars 2023. Sótt 29. mars 2023.
  2. Bjarki Sigurðsson (27. mars 2023). „Humza Yousaf tekur við af Sturgeon“. Vísir. Sótt 29. mars 2023.
  3. „Yousaf nýr leiðtogi Skoska þjóðarflokksins“. mbl.is. 28. mars 2023. Sótt 29. mars 2023.
  4. Markús Þ. Þórhallsson (28. mars 2023). „Þingið staðfestir Yousaf sem fyrsta ráðherra í dag“. RÚV. Sótt 29. mars 2023.
  5. „Yousaf sagði af sér“. mbl.is. 29. apríl 2024. Sótt 29. apríl 2024.
  6. Hólmfríður Gísladóttir (29. apríl 2024). „Yousaf segir af sér sem ráð­herra og for­maður Skoska þjóðar­flokksins“. Vísir. Sótt 29. apríl 2024.


Fyrirrennari:
Nicola Sturgeon
Æðsti ráðherra Skotlands
(29. mars 20237. maí 2024)
Eftirmaður:
John Swinney


  Þetta æviágrip sem tengist stjórnmálum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.