Gunnar Smári Egilsson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gunnar Smári Egilsson
Gunnar Smári árið 2017
Fæddur11. janúar 1961 (1961-01-11) (63 ára)
StörfBlaðamaður, útgefandi, ritstjóri, stjórnmálamaður
Þekktur fyrirSósíalistaflokk Íslands, Fréttablaðið og Samstöðina

Gunnar Smári Egilsson (f. 11. janúar 1961) er íslenskur stjórnmálamaður og gegnir embætti formanns framkvæmdarstjórnar Sósíalistaflokks Íslands og er einnig íslenskur blaðamaður, útgefandi og ritstjóri. Hann er núverandi stjórnarmaður og ábyrgðarmaður frétta hjá Samstöðinni. Hann hefur stofnað og starfað í fjölmörgum miðlum, bæði á Íslandi og erlendis og hefur haft mikil áhrif á fréttaflutning í íslenskum miðlum. Hann var einn af stofnaðilum Sósíalistaflokks Íslands árið 2017. Gunnar Smári ólst upp í Hafnarfirði.

Gunnar Smári hefur fengið bæði lof og gagnrýni fyrir vinnu sína. Sumir lofa hann fyrir að hafa brotið nýjar leiðir í íslenskum fjölmiðlum, en aðrir gagnrýna hann fyrir að hafa verið of ofdjarfur í málum sem tengjast stjórnmálum. [heimild vantar]

Fjölmiðlaferill[breyta | breyta frumkóða]

Gunnar Smári hóf ferilinn sem blaðamaður á 8. áratug 20. aldar. Hann varð fljótlega þekktur fyrir skörp skrif sín og fókus á samfélagsmál. Gunnar Smári var einn af stofnendum Fréttablaðsins og vikublaðanna Eintaks og Morgunpóstsins ásamt því að ritstýra vikublaðinu Pressunni. Auk þess var hann einn af stofnendum og útgefendum Nyhedsavisen sem gefið var út í Danmörku að fyrirmynd Fréttablaðsins og einn af eigendum og ritstjóri Fréttatímans.

Gunnar Smári hefur haft mikil áhrif á íslenska fjölmiðlaumhverfið. Með stofnun og starfi sínu á Fréttablaðinu og öðrum miðlum hefur hann haft bein áhrif á fréttaflutning í íslenskum miðlum.[1]

Stjórnmálaferill[breyta | breyta frumkóða]

Gunnar Smári var einn af fjölmörgum stofnaðilum Sósíalistaflokks Íslands, sem var stofnaður 1. maí árið 2017. Hann er núverandi formaður framkvæmdastjórnar flokksins[2]. Sósíalistaflokkur Íslands hefur barist gegn fátækt og á betri kjör launþega.[3]

Tilvísun[breyta | breyta frumkóða]

  1. „Gunnar Smári hvetur fólk til þess að afþakka Fréttablaðið“. Vísir.is. 18. febrúar 2019. Sótt 30. desember 2022.[óvirkur tengill]
  2. „Skráning – Sósíalistaflokkurinn“. Sósíalistaflokkurinn. Sótt 30. desember 2022.
  3. „Gunnar Smári stofnar Sósíalistaflokk Íslands“. RÚV. 11. apríl 2017. Sótt 30. desember 2022.