Flugfélagið Ernir

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Flugfélagið Ernir
Rekstrarform einkahlutafélag
Stofnað 1970
Staðsetning Reykjavíkurflugvöllur, Reykjavík
Lykilpersónur Hörður Guðmundsson, framkvæmdastjóri

Gunnar Hákon Unnarsson, Hlaðmaður
Bjarki Björn Gunnarsson, Sölumaður

Starfsemi Áætlunarflug, leiguflug, sjúkraflug
Vefsíða http://www.ernir.is

Flugfélagið Ernir (stofnað 1970) er íslenskt flugfélag sem flýgur frá Reykjavíkurflugvelli. Á upphafsárum þess var það stafrækt í póst og sjúkraflugi á Vestfjörðum, en var síðar lagt niður árið 1995. Þegar félagið var endurvakið, árið 2003 var ákveðið að fljúga frá Reykjavík.[1]

Flugleiðir félagsins eru til Bíldudals, Gjögurs, Húsavíkur, Hornarfjarðar og Vestmannaeyja. Flug félagsins til Bíldudals og Gjögurs eru og verða á styrk Vegagerðarinnar til ársins 2012.[2] Flugfélagið fékk 100% stundvísi í athugun á Hornarfjarðarflugvelli, þar sem miðað er við hámark 15 mínútna töf, en annars telst vélin sein.[3]

Flugfloti[breyta | breyta frumkóða]

  • TF-ORN Cessna A185F
  • TF-ORB Cessna 207
  • TF-ORE Piper Navajo
  • TF-ORA Jetstream 3200
  • TF-ORC Jetstream 3200
  • TF-ORD Jetstream 3100
  • TF-ORG Jetstream 3200 EP (SOLD)
  • TF-ORI Dornier 328

Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]

  1. Ágrip af sögu atvinnuflugs á Íslandi Geymt 22 júlí 2011 í Wayback Machine Flugsafn Íslands
  2. Flugfélagið Ernir og Vegagerðin semja um áætlunarflug
  3. „Flugfélagið Ernir með 100% stundvísi í komutímum til Hornafjarðar“. Afrit af upprunalegu geymt þann 4. mars 2016. Sótt 26. febrúar 2014.