Elliðaárdalur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Elliðaárdalur.

Elliðaárdalur er dalur í Reykjavík, sem nær frá Elliðavatni, vestur og norður að Elliðavogi. Hann dregur nafn sitt af Elliðaám, sem um hann renna. Elliðavogshraun þekur dalbotninn. Austan og norðan við dalinn eru hverfin Árbær og Höfðar, en sunnan og vestan við hann eru Heimar, Sogamýri, Fossvogur og Breiðholt.

Skógrækt hófst í dalnum árið 1951.[1]

Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]

  1. „Reykjavíkurborg endurheimtir Elliðaárdal“. www.mbl.is. 8. maí 2024.

Tenglar[breyta | breyta frumkóða]

  Þessi landafræðigrein sem tengist Reykjavík er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.