Borgaraflokkurinn (Pólland)

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Borgaraflokkurinn
Platforma Obywatelska
Formaður Donald Tusk
Aðalritari Marcin Kierwiński
Þingflokksformaður Borys Budka
Stofnár 2001; fyrir 23 árum (2001)
Stofnendur Andrzej Olechowski, Maciej Płażyński og Donald Tusk
Höfuðstöðvar ul. Władysława Andersa 21 00-159 Varsjá, Póllandi
Einkennislitur Dökkblár   Appelsínugulur  
Sæti á neðri þingdeild
Sæti á efri þingdeild
Vefsíða platforma.org

Borgaraflokkurinn (Platforma Obywatelska, skammstöfun PO) er frjálslynd-íhaldssamur, kristinn lýðveldisflokkur í Póllandi. Hann hefur verið stærsti flokkurinn í pólsku stjórnarandstöðunni frá árinu 2015. Leiðtogi flokksins er Borys Budka og Bronisław Komorowski var forseti Pollands frá 2010 til 2015. Borgaraflokkurinn var stærsti flokkurinn í pólska þinginu til þingkosninganna 2015, þar sem hægriflokkurinn Lög og réttlæti vann flest sæti. Borgaraflokkurinn er meðlimur í Evrópska þjóðarflokknum.

Flokkurinn var stofnaður árið 2001 af Andrzej Olechowski, Maciej Płażyński og Donald Tusk. Í þingkosningunum 2001 var Borgaraflokkurinn stærsti andstöðuflokkurinn, á eftir stjórnarflokknum Lýðræðislega vinstribandalagið (Sojusz Lewicy Demokratycznej). Borgaraflokkurinn var aftur næststærsti flokkurinn í þingkosningunum 2005 en í þetta skiptið voru Lög og réttlæti sigurvegarar. Árið 2007 uku vinsældir Borgaraflokksins og flokkurinn gekk í samsteypustjórn með Pólska alþýðuflokknum.

Síðan 2019 hefur PO verið kjarninn í Borgarabandalaginu (Koalicja Obywatelska, skammstöfun KO), sem síðan 2023 hefur verið sterkasta myndun ríkjandi bandalags, sem stofnaði ríkisstjórn Donald Tusk ásamt Þriðju leiðinni (bandalagi myndað af Polska 2050 og PSL) og Nowa Lewica.

Kjörfylgi[breyta | breyta frumkóða]

Þingkosningar
Kosningar Neðri þingdeild (Sejm) Efri þingdeild (Senat) Ríkisstjórn
Atkvæði % atkvæða Sæti Þingsæti Þingsæti
2001 1.651.099 12,68 2. 65 - Stjórnarandstaðan
2005 2.849.259 24,14 2. 133 34 Stjórnarandstaðan
2007 6.701.010 41,51 1. 209 60 Samsteypustjórn
2011 5.629.773 29,89 1. 207 63 Samsteypustjórn
2015 3.661.474 37,58 2. 138 34 Stjórnarandstaðan
2019 Samfylking með Nowoczesna, iPL og Zieloni 111 40 Stjórnarandstaðan
2023 126 36 Samsteypustjórn
Sveitarstjórnarkosningar
Kosningar Svæðisráð Sýslunefndir Sveitarstjórnir Borgarforsetar, borgarstjórar,

bæjarstjórar

% atkvæða Fulltrúar % atkvæða Fulltrúar Fulltrúar Fulltrúar
2002 Samsteypustjórn með PiS 48 ? 48 160 ?
2006 27,18 186 19,76 779 1784 46
2010 30,89 222 20,91 1315 2719 ?
2014 26,29 179 12,32 758 1264 54
2018 Samfylking með Nowoczesna, iPL og Zieloni 154 Samfylking með Nowoczesna, iPL og Zieloni ? ? 31
2024 210 1056 1649 49
Kosningar til Evrópuþingsins
Kosningar Atkvæði % atkvæða Sæti Þingsæti
2004 1.467.775 24,10 1. 15
2009 3.271.852 44,43 1. 25
2014 2.271.215 32,13 1. 19
2019 Samfylking með PSL, SLD,

Nowoczesna og Zieloni

14
  Þessi stjórnmálagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.