Stekkjarstaur
Útlit
(Endurbeint frá Stekkjastaur)
Stekkjarstaur nefnist jólasveinninn sem kemur fyrstur til manna, þann 12. desember. Hann er fyrstur samkvæmt þeirri röð sem birt er í Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá 1862.
Stekkjarstaur var sagður sjúga mjólk úr sauðkindum. Hann hafði staurfætur á báðum fótum svo það gekk heldur erfiðlega.
Stekkur var sérstök gerð fjárréttar og þaðan fékk Stekkjarstaur nafnið.
Um hann kvað Jóhannes úr Kötlum:
- Stekkjarstaur kom fyrstur,
- stinnur eins og tré.
- Hann laumaðist í fjárhúsin
- og lék á bóndans fé.
- Hann vildi sjúga ærnar,
- —þá varð þeim ekki um sel,
- því greyið hafði staurfætur,
- —það gekk nú ekki vel.
Sjá nánar
[breyta | breyta frumkóða]Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]- Nöfn jólasveina eftir Árna Björnsson Geymt 11 febrúar 2012 í Wayback Machine