PlayStation 4
PlayStation 4 | |
---|---|
Framleiðandi | Sony |
Tegund | Leikjatölva |
Kynslóð | Áttunda |
Gefin út | 15. nóvember,2013 15. nóvember, 2013 15. desember 2013 |
Örgjörvi | AMD x86-64 Jaguar |
Skjákort | GCN Radeon |
Miðlar | Blue-ray, DVD |
Netkort | PlayStation Network |
Sölutölur | 116.9 million 31. Desember 2021 |
Mest seldi leikur | God of War [1] |
Arftaki | PlayStation 5 |
Playstation 4 einnig þekkt sem PS4, er leikjatölva frá Sony Computer Entertainment. Playstation 4 var kynnt á blaðamannafundi þann 20. febrúar 2013 sem arftaki Playstation 3. PS4 er fyrsta vélin frá Sony sem býður upp á 64-bita tækni sem er þekkt víða í tölvum nútímans. Playstation 4 er mun hraðvirkari en PS3 en til samanburðar þá er sextán sinnum meira vinnsluminni í PS4 heldur en í PS3, þar að auki er nýja vinnsluminnið töluvert hraðvirkara GDDR5 minni. Einnig má nefna að Blu-Ray drifið er nú hraðvirkara auk þess sem nýr örgjörvi frá AMD (sérhannaður AMD Jaguar átta-kjarna) er notaður í nýju PS4. Sony ætlar að gefa út Playstation App sem virkar þannig að hægt verður að nota snjallsíma og spjaldtölvur (til dæmis iPad) til þess að spila Playstation 4-leiki í gegnum hefðbundna nettengingu. Þetta er mögulegt vegna samstarfs Sony og Gaikai sem er fyrirtæki sem sérhæfir sig í skýjaþjónustu fyrir tölvuleiki (cloud-based gaming sharing service) en með tilkomu Playstation 4 er meðal annars hægt að deila því sem þú ert að spila með heiminum og jafnvel geturðu látið vin þinn taka við leiknum þrátt fyrir að hann sé staddur í öðru landi.
Playstation 5 var arftaki þessarar leikjatölvu og kom út í desember 2020.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „List of best-selling PlayStation 4 video games“, Wikipedia (enska), 14. mars 2022, sótt 14. mars 2022