Steinkrympill
Útlit
(Endurbeint frá Krymplusveppur)
Steinkrympill | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Gyromitra esculenta (Pers. ex Pers.) Fr. (1849) | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
|
Steinkrympill (fræðiheiti Gyromitra esculenta) eða krymplusveppur[1] er asksveppur af ættkvíslinni Gyromitra. Sveppurinn finnst víða í Evrópu og Norður-Ameríku. Hann ber vanalega frjó í sandbornum jarðvegi undir barrtrjám að vori eða snemma sumars. Sveppurinn er óreglulega lagaður og að lögun eins og heili. Hann er dökkbrúnn og getur orðið 10 sm hár og 15 sm breiður á hvítum stilki sem getur orðið 6 sm að hæð.
Steinkrympill er afar eitraður hrár en í honum er eitrið Gyromitrin. Eitrunaráhrif hafa verið þekkt lengi en sums staðar er sveppurinn þurrkaður því mest af eitrinu hverfur við þurrkun. Eftir það er hann soðinn og vatninu hellt af.
Steinkrympill hefur fundist á Íslandi.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Baneitraður sveppur á Íslandi (frétt á Rúv 30. maí 2017)
- False morel fungi - poisionous when raw (Evira Finnish Food Safety Authority)
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Helgi Hallgrímsson. 2010. Sveppabókin. Skrudda, Reykjavík. ISBN 978-9979-655-71-8
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist steinkrympil.
Wikilífverur eru með efni sem tengist steinkrympil.