Hörður Björgvin Magnússon
Hörður Björgvin Magnússon | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Hörður Björgvin Magnússon | |
Fæðingardagur | 11. febrúar 1993 | |
Fæðingarstaður | Reykjavík, Ísland | |
Hæð | 190 cm | |
Leikstaða | bakvörður | |
Núverandi lið | ||
Núverandi lið | Panathinaikos | |
Yngriflokkaferill | ||
1998-2010 2011-2013 |
Fram Juventus | |
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
2009-2010 | Fram | 6 (0) |
2011-2016 | Juventus | 0(0) |
2013-2014 | →Spezia Calcio (lán) | 20 (0) |
2014-2016 | →AC Cesena (lán) | 39 (1) |
2016-2018 | Bristol City | 52 (1) |
2018-2022 | CSKA Moskva | 76 (5) |
2022- | Panathinaikos | () |
Landsliðsferill2 | ||
2009 2009-2011 2012-2014 2014- |
Ísland Ísland U-17 Ísland U-19 Ísland U-21 Ísland |
7 (0) 16 (2) 14 (0) 28 (2) |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
Hörður Björgvin Magnússon (fæddur 11. febrúar 1993) er íslenskur knattspyrnumaður sem spilar með gríska félaginu Panathinaikos. Hörður er varnarmaður á miðju eða á vinstri væng.
Félagaferill
[breyta | breyta frumkóða]Hörður hóf ferilinn með Fram en fór árið 2011 til ungmennaliðs Juventus. Árin 2014-2016 var hann í láni til Serie B deildarliðsins Spezia Calcio og Serie A liðsins A.C. Cesena. Árið 2016 fór Hörður í ensku meistaradeildina til Bristol City og skrifaði undir 3 ára samning. Þvínæst hélt hann til CSKA Moskvu.
Íslenska landsliðið
[breyta | breyta frumkóða]Hörður hefur spilað með A-landsliðinu frá 2014. Hann var valinn í hóp landsliðs Íslands í Evrópukeppninni í Frakklandi árið 2016 en hann var á varamannabekknum út mótið. Hörður skoraði sitt fyrsta landsliðsmark úr aukaspyrnu í vináttulandsleik á móti Írlandi þann 28. mars árið 2017. Hörður skoraði sigurmarkið í leik Íslands og Króatíu 11. júní 2017 á Laugardalsvelli. Hann var valinn í hópinn fyrir HM 2018 í Rússlandi.