Ferðamálayfirvöld Katar
Ferðamálayfirvöld Katar, sem heyrir undir ríkisstjórn Katar, er sá aðili sem ber ábyrgð á gerð og framkvæmd regla, reglugerða og laga sem tengjast þróun og kynningu ferðamála í Katar. Þetta ráðuneyti ber ábyrgð á ferðamannastöðum og gististöðum fyrir ferðamenn, og að stækka og auka við fjölbreytileika ferðamannaiðnaðar Katar, auk þess að byggja upp hlutverk ferðaþjónustu í vergri landsframleiðslu Katar og framtíðarvexti þess og félagslegri þróun.[1][2]
Vinna Ferðamálayfirvalda Katar er grundvölluð á Ferðamálastefnu Katar 2030,[3] gefin út í febrúar 2014, sem er áætlun fyrir framtíðarþróun iðnaðarins.[4]
Undanþágur frá vegabréfaáritun
[breyta | breyta frumkóða]Ríkisborgarar Samstarfsráðs Arabaríkjanna við Persaflóa (Barein, Kúveit,Óman, Sádi Arabía og Sameinuðu arabísku furstadæmin) þurfa ekki vegabréfaáritun til að koma til Katar.
Vegabréfaáritun fyrir gesti
[breyta | breyta frumkóða]Ríkisborgarar landanna 34 sem eru á listanum hér að neðan þurfa ekki vegabréfaáritun fyrir fram og geta fengið undanþágu frá vegabréfaáritun við komuna til Katar. Undanþágan gildir í 180 daga frá útgáfudagsetningu og veitir handhafa rétt til að eyða allt að 90 dögum í Katar, annað hvort í einni ferð eða mörgum ferðum.
1. Austurríki
2. Bahama-eyjar 3. Belgía 4. Búlgaría 5. Króatía 6. Kýpur 7. Tékkland 8. Danmörk 9. Eistland 10. Finnland 11. Frakkland 12. Þýskaland |
13. Grikkland 14. Ungverjaland 15. Ísland 16. Ítalía 17. Lettland 18. Liechtenstein 19. Litháen 20. Lúxemborg 21. Malasía 22. Malta 23. Holland 24. Noregur |
25. Pólland 26. Portúgal 27. Rúmenía 28. Seychelles-eyjar 29. Slóvakía 30. Slóvenía 31. Spánn 32. Svíþjóð 33. Sviss 34. Tyrkland |
Ríkisborgarar landanna 46 sem eru á listanum hér að neðan þurfa ekki vegabréfaáritun fyrir fram og geta fengið undanþágu frá vegabréfaáritun við komuna til Katar. Undanþágan gildir í 180 daga frá útgáfudagsetningu og veitir handhafa rétt til að eyða allt að 90 dögum í Katar, annað hvort í einni ferð eða mörgum ferðum. Undanþáguna má framlengja 30 daga í viðbót.
1. Andorra
2. Argentína 3. Ástralía 4. Aserbaísjan 5. Belarús 6. Bólivía 7. Brasilía 8. Brúnei 9. Kanada 10. Chile 11. Kína 12. Colombia 13. Costa Rica 14. Kúba 15. Ekvador 16. Georgía |
17. Gvæjana 18. Hong Kong 19. Indland 20. Indónesía 21. Írland 22. Japan 23. Kasakstan 24. Líbanon 25. Makedónía 26. Maldívur 27. Mexíkó 28. Moldóva 29. Mónakó 30. Nýja Sjáland 31. Panama 32. Paragvæ |
33. Perú 34. Rússland 35. San Marínó 36. Singapúr 37. Suður Afríka 38. Suður Kórea 39. Súrínam 40. Tæland 41. Úkraína 42. Stóra Bretland 43. Bandaríkin 44. Úrugvæ 45. Páfagarður 46. Venesúela |
Katar ferðamannavegabréfaáritanir
[breyta | breyta frumkóða]Gestir til Katar sem ferðast með hvaða flugfélagi sem er geta sótt um ferðamannavegabréfaáritun til Katar á netinu. Til að senda inn beiðni þurfa gestir að:
- Fylla út eyðublað á netinu
- Hlaða upp nauðsynlegum skjölum (þ.m.t. skönnun af vegabréfi og persónulegum ljósmyndum)
- Gefa upplýsingar um flugbókun
- Borga á netinu með gildu kreditkorti
Gestir sem ferðast til Katar með Qatar Airways, geta sótt um Ferðamannavegabréfaáritun til Katar, fyrir farþegann og alla samferðamenn á sömu bókun.
Katar vegabréfaáritun til gegnumferðar
[breyta | breyta frumkóða]Farþegar af öllum þjóðernum sem millilenda í Katar með Qatar Airways geta sótt um ókeypis 96 klukkutíma vegabréfaáritunar til gegnumferðar. Engu að síður eru vissir skilmálar sem eiga við, þess vegna er það einungis Innanríkisráðuneyti Katar sem hefur ákvörðunarrétt um útgáfu vegabréfaáritana.
Heimsóknarvegabréfaáritun fyrir ríkisborgara Samstarfsráðs Arabaríkjanna við Persaflóa
[breyta | breyta frumkóða]Ríkisborgarar Samstarfsráðs Arabaríkjanna við Persaflóa sem eru með stöður í samþykktum atvinnugreinum og samferðamenn þeirra geta fengið heimsóknarvegabréfaáritun fyrir ríkisborgarar Samstarfsráðs Arabaríkjanna við Persaflóa við komuna til Katar. Vegabréfaáritunin sem gildir í eitt skipti, má fá fyrir gjald upp á 100 QAR sem borga má með kreditkorti, gildir í 30 daga og má endurnýja í þrjá mánuði í viðbót. Gestir sem vilja nota þetta vegabréfaáritunarkerfi gætu verið beðnir um að sýna opinber skjöl sem sýna atvinnugrein þeirra við komuna til Katar.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Qatar National Vision 2030“. Ministry of Development Planning and Statistics. Afrit af upprunalegu geymt þann 7. október 2017. Sótt 26. september 2017.
- ↑ „Qatar National Development Strategy 2011~2016“ (PDF). Ministry of Development Planning and Statistics. Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 24. nóvember 2016. Sótt 26. september 2017.
- ↑ „Strategy 2030“. Qatar Tourism Authority. Afrit af upprunalegu geymt þann 5. október 2018. Sótt 26. september 2017.
- ↑ The Report: Qatar 2015. Oxford Business Group. 2015. ISBN 1910068276.