Aleksandr Lítvínenko
Aleksandr Valterovítsj Lítvínenko (rússneska: Александр Вальтерович Литвиненко, fæddur 30. ágúst 1962 — látinn 23. nóvember 2006) var undirofursti í rússnesku öryggisþjónustunni FSB. Árið 2000 flutti hann til Bretlands og gerðist breskur ríkisborgari og rithöfundur. Hann gagnrýndi harkalega þáv. forseta Rússlands, Vladímír Pútín.
Eitrun
[breyta | breyta frumkóða]1. nóvember 2006 veiktist Lítvínenko og var lagður inn á spítala í Lundúnum. Þann 19. nóvember 2006 sagði breska dagblaðið Sunday Times frá því að það hefði verið eitrað fyrir Lítvínenko og að hann lægi þungt haldinn á sjúkrahúsi í London. Þá var sagt frá því að eiturefnið hefði verið þallíum en reyndist síðar verið hið sjaldgæfa geislavirka efni Pólon-210.[1] Eitrunin er sögð hafa átt sér stað á fundi sem Litvinenko átti í sambandi við morðið á Önnu Polítkovskaju. Fyrir andlát sitt skrifaði Lítvínenko bréf þar sem hann lýsir því að Pútín hafa skipað fyrir eitruninni á honum.
Mannréttindadómstóll Evrópu komst árið 2021 að þeirri niðurstöðu að rússnesk stjórnvöld bæru ábyrgð á morðinu á Lítvínenko.[2]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „WSJ; Herða verður refsiaðgerðir gegn Pútín vegna morðsins á Litvinenko“. Varðberg. 22. janúar 2016. Sótt 18. mars 2022.
- ↑ Kjartan Kjartansson (21. september 2021). „Rússnesk stjórnvöld talin hafa myrt Litvinenko“. Vísir. Sótt 18. mars 2022.