Fara í innihald

Wikipediaspjall:Í fréttum...

Innihald síðu er ekki stutt á öðrum tungumálum.
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Óeirðirnar?

[breyta frumkóða]

Af hverju að kalla þetta Óeirðirnar í Bandaríkjunum þegar þetta eru að mestu leyti friðsöm mótmæli? Enska wiki kallar þetta mótmæli--Berserkur (spjall) 2. júní 2020 kl. 10:00 (UTC)[svara]

Rétt hjá þér. Ég breytti þessu. TKSnaevarr (spjall) 2. júní 2020 kl. 10:45 (UTC)[svara]

John Snorri

[breyta frumkóða]

Væri rétt að setja andlát John Snorra hér? Nú eru 10 dagar síðan hann týndist í aðstæðum sem eru ekki mannvænlegar. Bíða eftir formlegri staðfestingu? --Berserkur (spjall) 15. febrúar 2021 kl. 00:33 (UTC)[svara]

Þótt hann sé að öllum líkindum látinn er líklega nærgætnara gagnvart aðstandendum hans að vera ekki að reyna að skera úr um það hér. TKSnaevarr (spjall) 15. febrúar 2021 kl. 01:49 (UTC)[svara]

Mynd með eyðingartillögu

[breyta frumkóða]

Ég held að það sé ekki gott að hafa mynd á forsíðunni sem er með eyðingartillögu. Steinninn 5. júní 2024 kl. 10:55 (UTC)[svara]

Hún á kannski tvo til þrjá daga eftir enn. Ég fékk þessa mynd senda frá starfsmanni framboðsins. Það var skýrt að ég var að biðja um að gefin yrði út mynd með CC-BY-SA afnotaleyfi og starfsmaðurinn sagðist vera með grænt ljós frá ljósmyndaranum sjálfum fyrir því að þessi tiltekna mynd væri gefin út með slíku leyfi. Þetta dugaði ekki á Commons (fínt hjá þeim að gera kröfur, en eftirfylgnin er alveg af handahófi) þannig að þessi eyðingartillaga var sett á. Ég hef sett mig í samband beint við ljósmyndarann, en það er afskaplega erfitt að fá fólk úti í bæ til að fara formlegu leiðina og senda yfirlýsingu á netfang hjá Commons sem hljómar fyrir óinnvígðum eins og að maður sé að afsala sér öllum réttindum til eilífðar. Ég er ekki bjartsýnn um að þetta takist. Svo er önnur mynd af Höllu sem sumar tungumálaútgáfur eru farnar að nota sem er skjáskot úr fréttum RÚV og því augljóst höfundaréttarbrot, en það hefur farið fram hjá fólkinu á Commons. --Bjarki (spjall) 5. júní 2024 kl. 12:32 (UTC)[svara]
Já, ég er að lenda í sama veseni með myndir af Ásdísi og Höllu. Fékk tengil sem ég sendi svo á ljósmyndarana. Það er mjög einfalt ferli. En það er eins og þú segir, mjög erfit að fá nokkurn mann til að fara í gegnum það allt. Steinninn 5. júní 2024 kl. 13:59 (UTC)[svara]