Fara í innihald

Viktoría (Bresku-Kólumbíu)

Viktoría
Victoria
Hatley Castle
Hatley Castle
Viktoría er staðsett í Kanada
Viktoría
Viktoría
Staðsetning í Kanada
Hnit: 48°25′20″N 123°21′57″V / 48.42222°N 123.36583°V / 48.42222; -123.36583
Land Kanada
Fylki Breska-Kólumbía
Mannfjöldi
 (2025)[1]
 • Samtals103.888
TímabeltiUTC−07:00 (MST)
Vefsíðawww.victoria.ca Breyta á Wikidata
Þinghúsið.
Loftmynd.

Viktoría (enska: Victoria) er höfuðborg Bresku-Kólumbíu í Kanada og er staðsett á Vancouvereyju, um 100 kílómetra frá stórborgunum Vancouver og Seattle. Íbúafjöldi er rúmlega 100.000 manns (2025).[1] Stórborgarsvæði Viktoríu hefur um 397.000 íbúa.[2] Borgin heitir eftir Viktoríu Bretadrottningu. Þar er milt, hafrænt loftslag og frýs þar sjaldan.

Söguágrip

[breyta | breyta frumkóða]

Fyrir árið 1700 voru margir hópar frumbyggja á svæðinu. Spánverjar og Bretar könnuðu landsvæðið þar sem Viktoría er á 18. öld. Árið 1858 voru fregnir af gullfundi í Bresku-Kólumbíu, fólk streymdi á svæðið og íbúafjöldi stórjókst. Viktoría varð borg opinberlega árið 1862 og síðar höfuðstaður Bresku-Kólumbíu.

Áhugaverðir staðir

[breyta | breyta frumkóða]

Þekktar byggingar eru m.a.: Þinghúsið sem er frá 1897 og Empress hótelið sem er frá 1908. Beacon Hill Park er aðalalmenningsgarður borgarinnar. Kínahverfi borgarinnar er það næstelsta í vesturheimi á eftir San Francisco. Innri höfnin er vinsælt svæði og eru þar margir húsbátar. Ýmis söfn eru í borginni.

Innri höfnin og Empress hótelið.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 „Population estimates, July 1, by census subdivision, 2021 boundaries“. Statistics Canada. Sótt 19. september 2026.
  2. ↑ „Profile table, Census Profile, 2021 Census of Population - Victoria [Census metropolitan area], British Columbia“. Statistics Canada. 9 febrúar 2022. Sótt 10 febrúar 2022.

Fyrirmynd greinarinnar var „Victoria, British Columbia“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 18. okt. 2016 2016.