Vetrarólympíuleikarnir
Útlit
Vetrarólympíuleikarnir eru alþjóðlegt íþróttamót sem er haldið á fjögurra ára fresti. Fyrstu vetrarólympíuleikarnir voru haldnir í Chamonix í Frakklandi árið 1924. Upphaflega voru vetrarólympíuleikarnir haldnir sömu ár og Sumarólympíuleikarnir en árið 1986 ákvað Alþjóðaólympíunefndin að þeir skyldu haldnir milli sumarleika. Vegna breytingarinnar voru Vetrarólympíuleikarnir 1994 haldnir aðeins tveimur árum á eftir leikunum 1992.
Á Vetrarólympíuleikunum er keppt í vetraríþróttum: skíðum, skautum, sleðabruni og krullu.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist vetrarólympíuleikum.