Tröllakló
Útlit
Tröllakló eða tröllahvönn (fræðiheiti: Heracleum persicum) er fjölær risahvönn sem kemur frá Íran og er þekkt þar sem golpar (persnerska: گلپر) og komst hún til Skandinavíu á 1830 áratugnum og hefur dreift sér víða síðan þá. Hún var flutt til Íslands á síðustu öld þar sem hún var nokkuð vinsæl skrautjurt á þeim tíma, en núna er hún talin vera ágeng tegund sem þarf að halda í skefjum. Hún er eitruð og getur valdið brunasárum ef safi hennar kemst í snertingu við húð undir sólarljósi.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Tröllakló Geymt 5 ágúst 2026 í Wayback Machine, Náttúrufræðistofnun