Fara í innihald

Todor Zhívkov

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Todor Zhívkov
Тодор Живков
Todor Zhívkov árið 1971.
Aðalritari miðnefndar búlgarska kommúnistaflokksins
Í embætti
4. mars 1954 – 10. nóvember 1989
ForveriValko Tsjervenkov
EftirmaðurPetar Mladenov
Formaður ríkisráðs Búlgaríu
Í embætti
7. júlí 1971 – 17. nóvember 1989
ForveriGeorgí Trajkov
EftirmaðurPetar Mladenov
Forsætisráðherra Búlgaríu
Í embætti
19. nóvember 1962 – 7. júlí 1971
ForveriAnton Júgov
EftirmaðurStanko Todorov
Persónulegar upplýsingar
Fæddur7. september 1911(1911-09-07)
Pravets, Búlgaríu
Látinn5. ágúst 1998 (86 ára) Sófíu, Búlgaríu
ÞjóðerniBúlgarskur
StjórnmálaflokkurKommúnistaflokkur Búlgaríu
MakiMara Malíva-Zhívkova (g. 1936; d. 1971)
BörnLjúdmíla, Vladímír
Undirskrift

Todor Hrístov Zhívkov (búlgarska: Тодор Христов Живков; 7. september 1911 – 5. ágúst 1998) var búlgarskur stjórnmálamaður sem var leiðtogi Alþýðulýðveldisins Búlgaríu frá 1956 til 1989 sem aðalritari miðnefndar Kommúnistaflokks Búlgaríu. Zhívkov var næstþaulsetnasti þjóðarleiðtoginn í austurblokkinni, þaulsetnasti leiðtoginn innan Varsjárbandalagsins og þaulsetnasti leiðtogi í sögu Búlgaríu sem ekki var af kóngaættum.

Todor Zhívkov fæddist árið 1911 í þorpinu Pravets og var kominn af fátæku bændafólki. Hann gekk í æskulýðshreyfingu búlgarska kommúnistaflokksins árið 1928 og varð meðlimur í flokknum árið 1932. Hann var orðinn hátt settur í flokknum á árunum 1932 til 1941 og var einn helsti forystumaður flokksdeildarinnar í Sófíu. Sem slíkur tók Zhívkov virkan þátt í andspyrnuhreyfingu kommúnista gegn hernámi nasista í Búlgaríu á árum seinni heimsstyrjaldarinnar.[1]

Þegar kommúnistar tóku völdin í Búlgaríu eftir lok stríðsins hlaut hann ábyrgðarstöður innan flokksins. Hann var formaður flokksnefndarinnar í Sófíu frá 1948 til 1949 og var kjörinn í miðstjórn Kommúnistaflokksins árið 1945. Hann átti sæti í forsætisnefnd flokksins frá árinu 1951 og varð forsætisráðherra Alþýðulýðveldisins Búlgaríu árið 1962.[1] Zhívkov varð aðalritari Kommúnistaflokksins árið 1954.[2]

Sem leiðtogi Búlgaríu var Zhívkov ávallt mjög vilhallur Sovétríkjunum. Sjálfur lýsti hann sambandi ríkjanna sem „tveimur lungum í sama líkama með sömu blóðrás“.[3] Zhívkov fór eitt sinn fram á það að Búlgaría yrði formlega limuð inn í Sovétríkin en þáverandi leiðtogi Sovétríkjanna, Níkíta Khrústsjov, afþakkaði tilboðið.[4]

Heima fyrir studdist Zhívkov við svokallaða Tsjavdar-klíku, sem hafði tögl og hagldir í stjórnmálanefnd Kommúnistaflokksins. Klíkan var kennd við skæruliðasveit sem Zhívkov hafði stýrt á stríðsárunum, en margir félagar Zhívkovs úr stríðinu deildu völdum með honum á stjórnarárum hans. Zhívkov studdist einnig við hóp manna í stjórnmálanefndinni sem hann kom til metorða á fyrstu valdaárum sínum. Búlgarski herinn gerði misheppnaða valdaránstilraun gegn Zhívkov árið 1965 en eftir það voru völd hans sjaldan í hættu. Zhívkov hreinsaði reglulega til í forystuliði Kommúnistaflokksins til þess að forðast frekari ógnir gegn sér.[5]

Zhívkov kom í opinbera heimsókn til Íslands árið 1970. Hann var fyrsti leiðtogi austantjaldsríkis sem kom í opinbera heimsókn til landsins.[2] Hann fundaði með Jóhanni Hafstein forsætisráðherra og sat fyrir svörum blaðamanna í Ráðherrabústaðnum, þar sem hann varði meðal annars hernaðarinngrip Varsjárbandalagsins í Tékkóslóvakíu í vorinu í Prag 1968.[6]

Talið er að Zhívkov hafi fyrirskipað morðið á búlgarska rithöfundinum Georgí Markov í London árið 1978. Markov hafði verið einn vinsælasti rithöfundur Búlgaríu en hafði flúið land og hlotið starf hjá búlgarskri deild BBC. Hann vann einnig hjá bandarísku útvarpsstöðinni Radio Free Europe, sem útvarpaði áróðri frá Vesturlöndum til austantjaldsríkja. Markov lést úr eitrun úr efninu rísín fjórum dögum eftir að hafa verið stunginn með regnhlíf af vegfaranda á Waterloobrú í London.[3] Í útsendingum sínum á búlgörsku og í ritum sínum hafði Markov reglulega gagnrýnt Zhívkov. Þeir Zhívkov höfðu áður verið nánir vinir en Markov hafði fallið í ónáð í Búlgaríu vegna umfjöllunar sinnar um spillingu í búlgarska stjórnkerfinu.[7]

Fall frá völdum

[breyta | breyta frumkóða]

Árið 1984 gerði Zhívkov víðtækar breytingar á valdaforystunni í Búlgaríu og boðaði aðgerðir til þess að rétta við efnahag landsins.[8] Óánægja með spillingu og slæmt efnahagsástand jókst í Búlgaríu á níunda áratugnum. Efnahagsaðgerðir sem stjórn Zhívkovs boðaði báru lítinn árangur og ekki tókst að bæta úr þrálátum vöruskorti í landinu. Á svipuðum tíma hóf Zhívkov aukin afskipti af minnihlutahópi Tyrkja í Búlgaríu og hvatti tyrkneskumælandi landsmenn til að taka upp búlgörsk nöfn og aðlaga sig að búlgarskri menningu. Í maí 1989 hvatti Zhívkov tyrkneskumælandi landsmenn til að flytjast til Tyrklands, sem leiddi til þess að um 300.000 manns flúði land, þar til Tyrkir lokuðu landamærum sínum að Búlgaríu. Brottför svo margra úr landinu olli röskun í búlgörsku efnahagslífi og þegar um 60.000 manns ákváðu að snúa aftur til Búlgaríu olli það enn frekari erfiðleikum.[5]

Glundroðinn sem fylgdi fjöldaflótta búlgörsku Tyrkjanna sannfærði Petar Mladenov, utanríkisráðherra í stjórn Búlgaríu, að nauðsynlegt væri að losna við Zhívkov. Margir meðlimir stjórnmálanefndar kommúnistaflokksins voru orðnir óánægðir með Zhívkov, einkum vegna tilraunar hans til að upphefja son sinn, Vladímír, og koma honum í áhrifastöður. Mladenov fékk varnarmálaráðherrann Dobrí Dzhúrov, forsætisráðherrann Georgí Atanasov og utanríkisverslunarráðherrann Andrej Lúkanov til liðs við sig og hóf að leggja á ráðin um að steypa Zhívkov af stóli. Eftir að hafa reynt að tryggja stuðning hersins, draga úr áhrifum lífvarðasveitar Zhívkovs og fá grænt ljós frá Sovétmönnum létu samsærismennirnir til skarar skríða. Á fundi stjórnmálanefndarinnar 9. nóvember 1989 lögðu þeir fram vantrauststillögu gegn Zhívkov sem var að endingu samþykkt með eins atkvæðis mun. Zhívkov neyddist til að leggja niður völd og Mladenov var kjörinn nýr leiðtogi flokksins.[5]

Kommúnistastjórn Búlgaríu leið undir lok innan við ári eftir að Zhívkov var steypt af stóli. Eftir fall kommúnistastjórnarinnar var Zhívkov settur í stofufangelsi og kærður fyrir fjárdrátt og margvíslega spillingu. Zhívkov hélt því fram að hann hefði haft efasemdir um þjóðarskipulag kommúnistastjórnarinnar frá því á miðjum sjötta áratugnum en að hann hafi neyðst til að viðhalda því vegna þrýstings frá Sovétríkjunum.[4] Árið 1992 var Zhívkov dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir að hafa dregið sér fé upp á 21,5 milljónir búlgarskra lefa úr ríkissjóði og notað það til að kaupa 67 bifreiðar frá Vesturlöndum og og 72 lúxusíbúðir fyrir ættingja sína og vini.[9]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 „Forsætisráðherra Búlgaríu í heimsókn í kvöld“. Morgunblaðið. 24. september 1970. bls. 12.
  2. 1 2 „Forsætisráðherra Búlgaríu í opinberri heimsókn“. Alþýðublaðið. 24. september 1970. bls. 1.
  3. 1 2 „„Regnhlífarmorðið" rifjað upp“. Morgunblaðið. 19. október 1980. bls. 62–63.
  4. 1 2 Guðni Thorlacius Jóhannesson (1. febrúar 1991). „Kommúnistar kveðja“. Þjóðlíf. bls. 24.
  5. 1 2 3 Guðmundur Halldórsson (10. desember 1989). „Fall Zhívkovs“. Morgunblaðið. bls. 20-21.
  6. ↑ „„Við leyfum aldrei að kommúnísku skipulagi sé steypt"“. Morgunblaðið. 26. september 1970. bls. 1.
  7. ↑ Guðmundur Halldórsson (18. febrúar 1990). „Regnhlífarmorðið rannsakað“. Morgunblaðið. bls. 12–13.
  8. ↑ Guðmundur Halldórsson (31. janúar 1984). „Breytingar í Búlgaríu“. Morgunblaðið. bls. 16.
  9. ↑ „Ég komst í sögubækurnar og þar verð ég“. Morgunblaðið. 5. september 1992. bls. 19.