Fara í innihald

Stríðsskaðabætur í fyrri heimsstyrjöldinni

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þýska sendinefndin tekur við drögum að Versalasamningnum í Versölum 7. maí 1919.

Eftir ósigur þeirra í fyrri heimsstyrjöldinni féllust miðveldin á að greiða bandamönnum stríðsskaðabætur. Vegna slæmrar fjárhagsstöðu greiddu Austurríki, Ungverjaland og Tyrkland litlar sem engar bætur og kröfur á hendur þeim um greiðslu bóta voru síðar felldar niður. Bótakrafan gegn Búlgaríu var lækkuð og síðan felld niður eftir að aðeins lítill hluti bótanna hafði verið greiddur. Sagnfræðingar telja bótakröfuna á hendur Þýskalandi hafa verið „helsta átakavöll eftirstríðsáranna“ og „miðpunkt valdabaráttu milli Frakklands og Þýskalands um það hvort Versalasamningnum skyldi framfylgt eða honum breytt.“[1]

Versalasamningurinn

[breyta | breyta frumkóða]

Versalasamningurinn var undirritaður 28. júní árið 1919 í Speglasalnum í Versölum og batt formlega enda á fyrri heimsstyrjöldina milli Þýskalands og bandamanna Frakka, Breta og Bandaríkjamanna.[2] Samningurinn kvað á um landmissi, takmarkanir á hernaðaruppbyggingu og fjárhagslegar skuldbindingar á hendur Þýskalandi, um leið og því var gert að axla ábyrgð á upptökum og afleiðingum stríðsins.[3] Varð samningurinn að einu umdeildasta friðarsamkomulagi evrópskrar sögu og að helsta deilumáli þýskra stjórnmála á millistríðsárunum, ekki síst vegna þess að Þjóðverjar töldu hann almennt niðurlægjandi, auk hinna íþyngjandi stríðsskaðabóta.[4] Þótt umræða beinist gjarnan að áhrifum stríðsskaðabóta samningsins, snerist samtímaumræða einnig talsvert um hin sálrænu áhrif og niðurlægingu sem hann vakti upp meðal þýsku þjóðarinnar.[5]

Viðbrögð í Þýskalandi

[breyta | breyta frumkóða]

Með friðarráðstefnunni í París í janúar 1919 var leitast við að koma á nýrri skipan Evrópu eftir fall þýska, austurrísk-ungverska og rússneska keisaraveldisins auk Ottómanveldisins í fyrri heimsstyrjöldinni.[6] Í anda sjálfsákvörðunarréttar þjóða voru ný ríki mynduð í Mið- og Austur-Evrópu um leið og leitast var við að tryggja að Þýskaland yrði ekki framar ógn við frið og öryggi nágranna sinna.[7]

Þegar þýska sendinefndin kom til Versala varð henni fljótt ljóst að væntingar um frið á grundvelli fjórtán punkta Woodrow Wilsons myndu ekki ganga eftir. Þegar skilmálar samningsins voru kynntir samninganefnd Þjóðverja í maí 1919 brugðust fulltrúar hennar við með felmtri og fréttir af innihaldi hans vöktu mikla reiði í Þýskalandi.[8] Einungis fáeinar athugasemdir þýsku samninganefndarinnar voru teknar til greina og engar eiginlegar samningaviðræður fóru fram um meginskilmálana.[9] Þýski utanríkisráðherrann Ulrich von Brockdorff-Rantzau vísaði í ræðu sinni til fjórtán punkta Woodrow Wilsons, sem hann taldi að þýsku þjóðinni hefði verið lofað friði á grundvelli þeirra, en að skilmálar samningsins hefðu brugðist þeim væntingum.[10]

Samningurinn fól í sér verulegan missi landsvæða, þar á meðal Alsace-Lorraine til Frakklands og landsvæði í austri til Póllands, auk þess sem Þýskaland missti allar nýlendur sínar.[11] Herafli landsins var takmarkaður við 100.000 menn og Rínarlöndin skyldu hernumin af bandamönnum í allt að fimmtán ár.[12]

Eitt umdeildasta ákvæðið var grein 231, svokölluð stríðssektarklausa, sem kvað á um fulla ábyrgð Þýskalands á stríðinu og varð lagalegur grundvöllur stríðsskaðabótanna.[13] Sú klausa vakti mikla reiði og varð einn eldfimasti þáttur samningsins í þýskri stjórnmálaumræðu.[14] Í samræmi við grein 233 í Versalasamningnum skyldi fjárhæð stríðsskaðabótanna ákvörðuð af sérstakri skaðabótanefnd, þar sem umfang bótagreiðslna var ekki endanlega ákveðið við undirritun samningsins.[15]

Viðbrögðin voru hörð og fordæmdi Philipp Scheidemann Þýskalandskanslari samninginn sem „miskunnarlausa aflimun“ og varaði við afleiðingum hans fyrir þýsku þjóðina.[16] Íhaldssamir og þjóðernissinnaðir stjórnmálaflokkar fordæmdu samninginn sem rán sem svipti Þýskaland landssvæðum, auðlindum og fullveldi.[17] Litu margir svo á að Þjóðverjar hefðu verið blekktir af bandamönnum og að skilmálarnir væru með öllu óásættanlegir.[18]

Þrátt fyrir þessa andstöðu taldi þýska stjórnin sig hafa fáa valkosti, þar sem bandamenn hótuðu að hefja hernað á ný ef samningurinn yrði ekki samþykktur.[19] Samningurinn var því undirritaður 28. júní 1919 af Hermann Müller og Johannes Bell fyrir hönd Þýskalands.[20] Eftir það varð hann eitt helsta deilumál þýsks stjórnmálalífs, ekki síst vegna þess að margir Þjóðverjar höfnuðu alfarið þeirri hugmynd að þjóð þeirra bæri ein ábyrgð á stríðinu.[21]

John Maynard Keynes gagnrýndi Versalasamninginn.

Stríðsskaðabætur og efnahagsleg áhrif

[breyta | breyta frumkóða]

Ákvæði samningsins um stríðsskaðabætur urðu fljótt meðal umdeildustu atriða hans. Kveðið var á um að Þýskaland bætti bandamönnum þann skaða sem stríðið hafði valdið, þótt umfang greiðslnanna væri ekki endanlega ákveðið við undirritun samningsins.[22]

Mesta samtímagagnrýnin kom frá John Maynard Keynes, sem sagði sig frá bresku sendinefndinni þar sem hann taldi kröfur bandamanna óbilgjarnar.[23] Í bókinni The Economic Consequences of the Peace lýsti hann samningnum sem „púnverskum“ friðarsamningum og hélt því fram að efnahagsleg veiklun Þýskalands myndi leiða til pólitísks óstöðugleika í Evrópu sem gæti stuðlað að verðbólgu og félagslegri ólgu.[24]

Síðari tíma sagnfræðingar hafa hins vegar dregið í efa að efnahagsleg áhrif samningsins hafi verið jafn afdrifarík. Þýski sagnfræðingurinn Detlev Peukert telur að samningurinn hafi sameinað refsandi og sáttamiðuð atriði og að Þýskaland hafi áfram haldið verulegri efnahagslegri framleiðslugetu þrátt fyrir landmissi.[25] Með Dawes-áætluninni 1924 voru greiðslur tengdar efnahagsþróun landsins og erlent fjármagn, einkum frá Bandaríkjunum, lék stórt hlutverk við að koma á stöðugleika eftir kreppuna 1923.[26] Á sama tíma stefndi þýsk utanríkisstefna undir forystu Gustav Stresemann að friðsamlegri endurskoðun Versalasamninganna með alþjóðlegu samstarfi, meðal annars með Locarno-samningunum og aðild að Þjóðabandalaginu.[27]

Með tilkomu Dawes-áætlunarinnar hófst hringrás fjármagnsflæðis þar sem bandarísk lán streymdu til Þýskalands, sem notaði þau til að greiða stríðsskaðabætur, á meðan bandamenn gátu greitt skuldir sínar við Bandaríkin.[28] Young-áætlunin 1929 endurskipulagði greiðslurnar enn frekar og lækkaði árlega greiðslubyrði þeirra. Þótt tímabundinn stöðugleiki hafi náðst í þýsku efnahagslífi var hagkerfið háð áframhaldandi innflæði bandarísks fjármagns sem stöðvaðist eftir kreppuna miklu árið 1929.[29]

Þrátt fyrir þetta bendir Peukert á að stöðugleiki áranna 1924–1929 hafi að vissu leyti verið á yfirborðinu, þar sem undirliggjandi vandamál sem tengdust bæði Versalasamningnum og stofnun lýðveldisins höfðu ekki verið leyst.[30]

Peukert hefur einnig bent á að efnahagsbyrðar stríðsskaðabótanna hafi verið ofmetnar í stjórnmálaumræðu Weimar-lýðveldisins og snerist umræða um þær ekki einungis um upphæð þeirra, heldur einnig um framkvæmd greiðslnanna og svokölluð „yfirfærsluvandamál“, þar sem afla þurfti gjaldeyris með brothættum útflutningi Weimar-lýðveldisins.[31]

Heinrich Brüning reyndi að knýja fram endurskoðun Versalasamningsins.

Pólitískar afleiðingar í Weimar-lýðveldinu

[breyta | breyta frumkóða]

Að mati Peukerts aflaði stríðssektarklausan þjóðernishreyfingum fylgi með því að halda því fram að Þjóðverjar hefðu verið hafðir fyrir rangri sök og niðurlægðir með skilmálum friðarsamninganna.[32] Sameinaði andstaðan við Versalasamninginn stóran hluta hins pólitíska litrófs og varð að föstum punkti í stjórnmálaumræðu Weimar-lýðveldisins um leið og hnignun frjálslyndu flokkanna á seinni hluta þriðja áratugarins veikti miðju stjórnmálanna og gerði hið unga lýðræðislega stjórnkerfi Weimar brothættara.[33]

Róttækar þjóðernishreyfingar nýttu sér þessa andstöðu og tómarúmið sem myndaðist á miðju stjórnmálanna. Einkum notuðu nasistar samninginn í áróðri sínum og tengdu hann við hugmyndir um svik innanlands og niðurlægingu þjóðarinnar. Slíkar hugmyndir byggðust á þeirri sýn að ósigur Þýskalands hefði stafað af svikum innanlands fremur en hernaðarlegum ósigri.[34] Þeir sem samþykktu samninginn voru kallaðir „nóvember-glæpamennirnir“, sem tengdist svokallaðri „rýtingsstungumýtu“.[35]

  1. ↑ Henig 1995, bls. 63.
  2. ↑ McDonough, 121.
  3. ↑ Ullrich, 36.
  4. ↑ Weitz, 38.
  5. ↑ Simmel, 7.
  6. ↑ Weitz, 34.
  7. ↑ Peukert, 44–45.
  8. ↑ Weitz, 34–35.
  9. ↑ Peukert, 43.
  10. ↑ Brockdorff-Rantzau, 11.
  11. ↑ Ullrich, 36.
  12. ↑ Peukert, 46.
  13. ↑ Ullrich, 36.
  14. ↑ Peukert, 46.
  15. ↑ The Treaty of Versailles: The Reparations Clauses, 9.
  16. ↑ Weitz, 36.
  17. ↑ Weitz, 36.
  18. ↑ McDonough, 121.
  19. ↑ Weitz, 37.
  20. ↑ Ullrich, 38.
  21. ↑ Weitz, 38.
  22. ↑ Weitz, 36.
  23. ↑ McDonough, 145.
  24. ↑ McDonough, 145; Keynes, 251.
  25. ↑ Peukert, 44.
  26. ↑ Peukert, 196.
  27. ↑ Peukert, 200.
  28. ↑ Peukert, 196.
  29. ↑ Peukert, 196.
  30. ↑ Peukert, 207.
  31. ↑ Peukert, 55–56, 197.
  32. ↑ Peukert, 46.
  33. ↑ Weitz, 38; Peukert, 210.
  34. ↑ Hindenburg, 16.
  35. ↑ Weitz, 333; McDonough, 125.
  • Balderston, Theo. Economics and Politics in the Weimar Republic. Cambridge: Cambridge University Press, 2002.
  • Brockdorff-Rantzau, Ulrich von. "Speech to the Peace Conference," í The Weimar Republic Sourcebook, ritstj. Anton Kaes, Martin Jay og Edward Dimendberg (Berkeley: University of California Press, 1994).
  • Carter, Zachary D. The Price of Peace: Money, Democracy, and the Life of John Maynard Keynes. New York: Random House, 2020.
  • Hindenburg, Paul von. "The Stab in the Back," í The Weimar Republic Sourcebook, ritstj. Anton Kaes, Martin Jay og Edward Dimendberg (Berkeley: University of California Press, 1994).
  • Keynes, John Maynard. The Economic Consequences of the Peace. London: Macmillan, 1919.
  • McDonough, Frank. The Weimar Years: Rise and Fall, 1918–1933. London: Head of Zeus, 2018.
  • Peukert, Detlev J. K. The Weimar Republic: The Crisis of Classical Modernity. New York: Hill and Wang, 1992.
  • Simmel, Ernst. "War Neuroses and 'Psychic Trauma'," í The Weimar Republic Sourcebook, ritstj. Anton Kaes, Martin Jay og Edward Dimendberg (Berkeley: University of California Press, 1994).
  • "The Treaty of Versailles: The Reparations Clauses," í The Weimar Republic Sourcebook, ritstj. Anton Kaes, Martin Jay og Edward Dimendberg (Berkeley: University of California Press, 1994).
  • Ullrich, Volker. Fateful Hours: The Collapse of the Weimar Republic. New York: W. W. Norton & Company, 2025.
  • Weitz, Eric D. Weimar Germany: Promise and Tragedy. Princeton, NJ: Princeton University Press, 2007.