Fara í innihald

Songs from the Wood

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Songs from the Wood
Breiðskífa
FlytjandiJethro Tull
Gefin út11. febrúar 1977
Tekin upp14. september - 16. nóvember 1976 í Morgan Studios, London
StefnaÞjóðlagarokk, framsækið rokk, harðrokk
Lengd41:17
ÚtgefandiChrysalis Records
StjórnIan Anderson
Tímaröð – Jethro Tull
Too Old to Rock 'n' Roll: Too Young to Die!
(1976)
'Songs from the Wood '
(1977)
Heavy Horses
(1978)

Songs from the Wood er 10. breiðskífa ensku hljómsveitarinnar Jethro Tull. Hún er blanda af þjóðlagarokki og framsæknu rokki. Litið er á hana ásamt Heavy Horses (1978) og Stormwatch (1979) sem þjóðlagarokksþrennu. Textarnir fjalla um sveitalíf og goðsagnir.

Lagið Ring Out, Solstice Bells var gefið út á stuttskífu fyrir jólin 1976 og hefur síðan verið vinsælt jólalag í Bretlandi síðan [1]. The Whistler var einnig gefið út sem smáskífa. Platan var sú fyrsta með Dee Palmer, hljómborðsleikara, sem opinberan meðlim. Hún náði 8. sæti á Billboard 200-plötusölulistanum stuttu eftir að hún kom út. [2]

Platan var síðar gefin út með aukalögum 2003 og veglegri afmælisútgáfu árið 2017 þar sem Steven Wilson sá um endurhljóðblöndun.

Hlið 1:
Nr.TitillLengd
1.„Songs from the Wood“4:52
2.„Jack-in-the-Green“2:27
3.„Cup of Wonder“4:30
4.„Hunting Girl“5:11
5.„Ring Out, Solstice Bells“3:43
Hlið 2:
Nr.TitillLengd
6.„Velvet Green“6:03
7.„The Whistler“3:30
8.„Pibroch (Cap in Hand)“8:35
9.„Fire at Midnight“2:26
Samtals lengd:41:17

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]