Fara í innihald

Kaupmáli

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Séreignarkaupmáli)

Kaupmáli er samningur sem hjónaefni eða hjón gera stundum gagnvart hvoru öðru við stofnun hjúskapar og á meðan honum stendur. Á Íslandi gildir kaupmáli ekki nema hann sé skráður með lögákveðnum hætti og samþykktur af hálfu beggja hjóna. Breytingar eða afturkallanir á kaupmálum eru bundnar sömu skilyrðum og gilda um kaupmála almennt. Kaupmálar eru skráðir í kaupmálaskrá sem sýslumenn viðhalda, og einnig auglýstir í Lögbirtingablaðinu. Kaupmálar geta ýmist verið gjafakaupmálar, séreignarkaupmálar og einnig verið bæði gjafa- og séreignarkaupmálar.

Gjafakaupmálar

[breyta | breyta frumkóða]

Gjafakaupmálar fela í sér gjöf annars hjónanna til hins. Meginreglan er að gjafir milli þeirra séu ekki gildar nema gerður hafi verið gjafakaupmáli. Ýmsar undanþágur eru frá þeirri skyldu eins og í tilviki venjulegra gjafa.

Séreignarkaupmálar

[breyta | breyta frumkóða]

Séreignarkaupmálar fela í sér að hjúskapareign(um) er breytt í séreign(ir) og/eða öfugt.

  Þessi lögfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.