Sáttmálsörkin

Sáttmálsörkin er samkvæmt hebresku biblíunni kista sem gerð var til að geyma steintöflurnar sem boðorðin tíu voru letruð á.
Fyrst er greint frá sáttmálsörkinni í annarri bók Móse. Þar segir að Guð hafi skipað Móse að láta smíða örk úr tré til þess að geyma steintöflurnar eftir að Móse kom með þær niður af Sínaífjalli til að sýna Hebreum. Maður að nafni Besalel Úríson af ættbálki Júda hafi verið fenginn til verksins eftir forskrift Guðs:[1]
| Þeir skulu gjöra örk af akasíuviði. Hún skal vera hálf þriðja alin á lengd, hálf önnur alin á breidd og hálf önnur alin á hæð. Hana skaltu leggja skíru gulli, innan og utan skaltu gullleggja hana, og umhverfis á henni skaltu gjöra brún af gulli. Þú skalt steypa til arkarinnar fjóra hringa af gulli og festa þá við fjóra fætur hennar, sína tvo hringana hvorumegin. Þú skalt gjöra stengur af akasíuviði og gullleggja þær. Síðan skalt þú smeygja stöngunum í hringana á hliðum arkarinnar, svo að bera megi örkina á þeim. Skulu stengurnar vera kyrrar í hringum arkarinnar, eigi má taka þær þaðan. Og þú skalt leggja niður í örkina sáttmálið, er ég mun fá þér í hendur.
Þú skalt og gjöra lok af skíru gulli. Skal það vera hálf þriðja alin á lengd og hálf önnur alin á breidd. Og þú skalt gjöra tvo kerúba af gulli, af drifnu smíði skalt þú gjöra þá á hvorum tveggja loksendanum. Og lát annan kerúbinn vera á öðrum endanum, en hinn á hinum endanum. Þú skalt gjöra kerúbana áfasta við lokið á báðum endum þess. En kerúbarnir skulu breiða út vængina uppi yfir, svo að þeir hylji lokið með vængjum sínum, og andlit þeirra snúa hvort í mót öðru; að lokinu skulu andlit kerúbanna snúa. |
||
— Biblían. Önnur bók Móse 25:10-20. |
Besalel gerði sáttmálsörkina uppi á Hórebfjalli úr akasíuviði. Hún var um 125 cm á lengd, um 75 cm á hæð og eins á breiddina. Örkin var fyrst geymd í samfundatjandi, færanlegum helgidóm sem Besalel hafði áður búið til og Hebrear höfðu með sér í för sinni frá Egyptalandi. Ættkvísl Levíta var falið að bera sáttmálsörkina, „standa frammi fyrir augliti Drottins, þjóna honum og blessa í nafni hans“. Þegar örkin var flutt á milli staða var fortjaldi samfundatjaldsins vefið um hana og hún hulin ábreiðu úr höfrungaskinni og purpurabláu klæði til þess að ekki sæist í hana.[1]
Þegar Ísraelsmenn lögðu undir sig Kanansland eftir 40 ár í eyðimörkinni var örkin geymd á ýmsum stöðum. Þegar Salómon konungur lét reisa musteri sitt í Jerúsalem var sáttmálsörkinni komið fyrir þar innst inni. Var hún þar sýnilegt tákn þess að Guð stæði með Ísrael.[1]
Ekki er fyllilega ljóst hvað varð um sáttmálsörkina. Í fyrri konungabók er greint frá því að á fjórða stjórnarári Rehabeams konungs, eða í kringum 925 f.Kr., hafi egypski konungurinn Sísak haldið í herför gegn Jerúsalem og rænt ýmsum fjársjóðum úr musterinu og konungshöllinni. Hugsanlegt er að þarna hafi örkinni verið stolið. Einnig eru kenningar um að örkin hafi glatast þegar Nebúkadnesar 2., konungur Babýlóníu, gerði árás á Jerúsalem og lagði borgina og musterið í rúst.[1] Örkin er þó ekki nefnd í heimildum meðal þeirra muna sem Nebúkadnesar er sagður hafa stolið frá Jerúsalem. Enn önnur kenning hermir að örkinni hafi verið bjargað og hún falin einhvers staðar áður en Babýlóníumenn eyðilögðu musterið.[2]
Árið 516 var annað musteri reist í Jerúsalem en engar heimildir eru fyrir því að sáttmálsörkin hafi nokkurn tímann verið geymd þar. Engu að síður eru til kenningar um að örkinni hafi verið rænt úr musterinu þegar sýrlenski konungurinn Antíokkus 4. Epífanes réðst á það á 2. öld f.Kr. Þá telja enn aðrir að örkin hafi verið flutt til Rómar eftir að Rómverjar lögðu seinna musterið í rúst í umsátrinu um Jerúsalem árið 70. Örkin var þó ekki í seinna musterinu þegar rómverski herforinginn Pompeius skyggndist þangað inn árið 63 f.Kr.[1]
Eþíópíska rétttrúnaðarkirkjan heldur því fram að sáttmálsörkin sé geymd í Kirkju Heilagrar Maríu frá Síon í borginni Axum. Samkvæmt eþíópískri hefð rændi sonur Salómons konungs og drottningarinnar af Saba, Menelik, örkinni og fór með hana þangað.[1]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- 1 2 3 4 5 6 Sigurður Ægisson (9. júlí 2008). „Hvað varð um steintöflurnar með boðorðunum tíu?“. Vísindavefurinn. Sótt 26. ágúst 2026.
- ↑ Hilmir Þór Kolbeins (febrúar 2020). „Sáttmálsörk Drottins“ (PDF). Sótt 30. ágúst 2026.