Fara í innihald

Reykjavíkurmaraþon

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Reykjavíkurmaraþon (eða Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka síðan Íslandsbanki varð aðalstyrktaraðili hlaupsins árið 1997) er árlegt götuhlaup sem fer fram í Reykjavík. Það fór fyrst fram árið 1984. Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) hefur haft umsjón með hlaupinu frá 2003.

Árið 2014 (31. hlaupið) var metþáttaka í hlaupinu, en þá voru skráðir 15.552 þáttakendur.[1]

Hlaupið var fellt niður árin 2020 og 2021 vegna Covid-19-faraldursins.[2]

Árið 1983 fengu þeir Knútur Óskarsson og Steinn Lárusson, sem báðir störfuðu í ferðabrasanum, þá hugmynd að halda maraþonhlaup í Reykjavík til að laða fleiri ferðamenn til landsins. Fyrsta hlaupið varð að veruleika ári síðar, eða 1984. Þá voru alls 214 skráðir og voru 79 af þáttakendunum frá öðrum löndum.[1]

Góðgerðarsöfnun

[breyta | breyta frumkóða]

Síðan 2007 hefur þáttakendum Reykjavíkurmaraþonsins verið boðið að hlaupa til styrktar góðum málefnum. Yfir hundrað góðgerðarfélög hafa tekið þátt í styrktarsöfnun gegnum árin og upphæðin sem safnast hefur aukist ár frá ári. Heildarupphæð sem hefur safnast í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka frá því að söfnun hófst til apríl 2026 er tæpar 1.701 miljónir.[3]

Bestu tímar frá upphafi

[breyta | breyta frumkóða]

Eftirfarandi töflur sýna bestu tímana í hlaupinu frá upphafi:[4]

10 km hlaupið

[breyta | breyta frumkóða]
Bestu tímar í 10 km hlaupi (karlar)
Sæti Nafn Tími Fæðingarár Þjóðerni Ár hlaups
1Baldvin Þór Magnússon00:29:341999ISL2025
2Hlynur Andresson00:30:231993ISL2024
3Jack Martin00:30:581988GBR2014
4Kári Steinn Karlsson00:31:001986ISL2007
5Kári Steinn Karlsson00:31:391986ISL2009
6Kári Steinn Karlsson00:31:441986ISL2008
7Kevin Rojas Anderson00:31:501981GBR2013
8Gauti Jóhannesson00:31:581979ISL2004
9Þorbergur Ingi Jónsson00:32:001982ISL2013
10Sveinn Margeirsson00:32:041978ISL2001
11Mateo Dahmani00:32:051999FRA2025
12Daníel Smári Guðmundsson00:32:061961ISL1998
13Howard Bristow00:32:081975GBR2013
Bestu tímar í 10 km hlaupi (konur)
Sæti Nafn Tími Fæðingarár Þjóðerni Ár hlaups
1Ingmarie Nilson00:34:161966SWE1996
2Nina Henriette J Lauwaert00:34:431988BEL2017
3Kate Hulls00:35:191985GBR2017
4Nikki Archer00:35:381986GBR2007
5Katerina Kratochvilova Kriegelova00:35:491984CZE2019
6Adeline Roche00:35:531984FRA2019
7Elín Edda Sigurðardóttir00:35:551989ISL2019
8Guðlaug Edda Hannesdóttir00:36:081994ISL2017
9Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir00:36:231990ISL2024
10Arndís Ýr Hafþórsdóttir00:36:511988ISL2016
11Agate VIOLLEAU00:36:541988FRA2022
12Arndís Ýr Hafþórsdóttir00:36:551988DEN2014
13Elín Edda Sigurðardóttir00:36:571989ISL2024
Bestu tímar í 10 km hlaupi (kvár)
Sæti Nafn Tími Fæðingarár Þjóðerni Ár hlaups
1 Carlos Luis Rangles 00:51:16 1991 ECU 2025
2 Carlos Luis Rangles 00:52:57 1991 ECU 2024
3 Aró Berg Jónasar 00:54:17 1994 ISL 2025
4 Elías Rúni 01:03:55 1993 ISL 2023
5 Jóhanna Rakel 01:09:11 1995 ISL 2023
6 Aró Berg Jónasar 01:15:21 1994 ISL 2024
7 Elísabet Skagfjörð 01:15:21 1994 ISL 2025
8 Sól Dagsdóttur 01:16:46 1998 ISL 2025
9 Sól Dagsdóttur 01:18:49 1998 ISL 2024
10 Sunneva Kristín Sigurðardóttir 01:20:46 1993 ISL 2023
11 Andrea Rói Sigurbjörns 01:30:48 1994 ISL 2024
12 Sól Dagsdóttir 01:35:26 1998 ISL 2023
13 Gabríel Brim Helgu 01:36:23 1997 ISL 2024

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 „Um Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka“. Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. Afrit af upprunalegu geymt þann 7. júní 2026. Sótt 22. ágúst 2026.
  2. ↑ „Tölfræði“. Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. Afrit af upprunalegu geymt þann 18. apríl 2026. Sótt 22. ágúst 2026.
  3. ↑ „Saga góðgerðarsöfnunar“. Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. Afrit af upprunalegu geymt þann 18. apríl 2026. Sótt 22. ágúst 2026.
  4. ↑ „Bestu tímar frá upphafi - 10 km hlaup“. Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. 29. júlí 2025. Afrit af upprunalegu geymt þann 7. júní 2026. Sótt 22. ágúst 2026.