Rómverska konungdæmið
Útlit
Rómverska konungdæmið er tímabil í sögu Rómaveldis þegar því var stjórnað af konungi. Það nær frá stofnun Rómar sem venjulega er tímasett 753 f.Kr. þar til síðasti konungurinn Lúcíus Tarquíníus Superbus var hrakinn á brott og rómverska lýðveldið stofnað 510 f.Kr.
Konungar Rómar | |
Hefðbundin valdatími | |
---|---|
Rómúlus | 753 f.Kr. – 716 f.Kr. |
Núma Pompilíus | 715 f.Kr. – 674 f.Kr. |
Túllus Hostilíus | 673 f.Kr. – 642 f.Kr. |
Ancus Marcíus | 642 f.Kr. – 617 f.Kr. |
Lúcíus Tarquíníus Priscus | 616 f.Kr. – 579 f.Kr. |
Servíus Túllíus | 578 f.Kr. – 535 f.Kr. |
Lúcíus Tarquíníus Superbus | 535 f.Kr. – 510 f.Kr./509 f.Kr. |