Ráðherra Íslands
Útlit
(Endurbeint frá Ráðherraembætti)
Ráðherra Íslands var ráðherraembætti í ríkisstjórn Danmerkur sem tók við af embætti Íslandsráðgjafa eftir stjórnarskrárbreytingu sem samþykkt var árið 1902 og tók gildi þann 1. febrúar 1904. Ráðherra Íslands hafði aðsetur á Íslandi í heimastjórn og fór með framkvæmdavaldið í umboði Alþingis til 1917 þegar fyrsta samsteypustjórnin var mynduð og embætti forsætisráðherra Íslands búið til sem að tók við embætti ráðherra Íslands.
Ráðherra Íslands | Skipun | Lausn | Flokkur | Aldur | Kjördæmi | |
---|---|---|---|---|---|---|
Hannes Hafstein | 1. febrúar 1904 | 31. mars 1909 | Heimastjórnaflokki | 43 ára | Eyjafjarðarsýsla | |
Björn Jónsson | 31. mars 1909 | 14. mars 1911 | Landvarnaflokki | 62 ára | Barðastrandarsýsla | |
Kristján Jónsson | 14. mars 1911 | 24. júlí 1912 | Utan flokka | 59 ára | Borgarfjarðarsýsla | |
Hannes Hafstein | 25. júlí 1912 | 21. júlí 1914 | Sambandsflokki | 51 árs | Eyjafjarðarsýsla | |
Sigurður Eggerz | 21. júlí 1914 | 4. maí 1915 | Sjálfstæðisflokki | 39 ára | Vestur-Skaftafellssýsla | |
Einar Arnórsson | 4. maí 1915 | 4. janúar 1917 | Sjálfstæðisflokki (langsum) | 35 ára | Árnessýsla |
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða] Þessi stjórnmálagrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.