Fara í innihald

Qasym-Jomart Toqaev

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Qasym-Jomart Toqaev
Қасым-Жомарт Тоқаев
Toqaev árið 2026.
Forseti Kasakstans
Núverandi
Tók við embætti
20. mars 2019
ForsætisráðherraAsqar Mamin
Älihan Smaiylov
Roman Skljar (starfandi)
Oljas Bektenov
VaraforsetiErlan Qarin (2026–)
ForveriNúrsúltan Nazarbajev
Forsætisráðherra Kasakstans
Í embætti
1. október 1999 – 28. janúar 2002
ForsetiNúrsúltan Nazarbajev
ForveriNūrlan Balğymbaev
Eftirmaðurİmanğali Тasmağambetov
Persónulegar upplýsingar
Fæddur17. maí 1953 (1953-05-17) (73 ára)
Alma-Ata, kasaska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum
ÞjóðerniKasaskur
StjórnmálaflokkurÓflokkbundinn (1991–1999, 2022–)
Amanat (1999–2022)
MakiNadejda Toqaeva (sk. 2019)[1]
Börn1
HáskóliAlþjóðastofnun Moskvuháskóla
Tungumála- og menningarháskólinn í Peking
Undirskrift

Qasym-Jomart Kemelūly Toqaev (kyrillískt letur á kasöksku: Қасым-Жомарт Кемелұлы Тоқаев, rússneska: Касым-Жомарт Кемелевич Токаев, umritað Kasym-Zhomart Kemelevítsj Tokajev; f. 17. maí 1953) er kasakskur stjórnmálamaður sem hefur verið forseti Kasakstans frá 20. mars 2019. Hann tók við forsetaembættinu af Núrsúltan Nazarbajev, sem sagði af sér eftir að hafa farið með völd frá sjálfstæði landsins. Toqaev hefur unnið í kasöksku utanríkisþjónustunni og hefur meðal annars verið utanríkisráðherra, forsætisráðherra og þingforseti landsins.

Toqaev er sonur rithöfundar og fæddist inn í sovéska „elítufjölskyldu“.[2] Hann gekk í Alþjóðastofnun Moskvuháskóla og útskrifaðist þaðan 1975.[3] Eftir útskrift hóf hann störf í utanríkisþjónustu Sovétríkjanna og hjá utanríkisráðuneytinu í Moskvu. Hann starfaði meðal annars í Singapúr og Kína. Árið 1991, árið sem Kasakstan varð sjálfstætt ríki, var Toqaev staðsettur í sovéska sendiráðinu í Peking. Hann útskrifaðist frá diplómataskóla Rússlands árið 1992.[3]

Toqaev sem framkvæmdastjóri skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Genf.

Árið 1992 varð Toqaev varautanríkisráðherra heimalands síns, Kasakstans. Hann varð fyrsti varautanríkisráðherra næsta ár og utanríkisráðherra árið 1994.[3]

Toqaev varð varaforsætisráðherra í mars 1999 og forsætisráðherra í október sama ár.[3] Hann sagði af sér árið 2002 og hóf aftur störf hjá utanríkisráðuneytinu. Toqaev varð utanríkisráðherra að nýju og gegndi því embætti til ársins 2007.[3]

Árið 2007 varð Toqaev forseti öldungadeildar kasakska þingsins. Sama ár gekk hann í stjórnarflokk landsins, Nur Otan, og hlaut sæti í stjórn flokksins.[3]

Í mars 2011 útnefndi aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna Toqaev í stöðu framkvæmdastjóra skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Genf.[4] Hann varð um leið persónulegur fulltrúi aðalframkvæmdastjórans við afvopnunarráðstefnuna.[3]

Forseti Kasakstans (2019–)

[breyta | breyta frumkóða]
Toqaev forseti fundar með Vladímír Pútín Rússlandsforseta 3. apríl 2019.

Þegar Núrsúltan Nazarbajev, sem hafði verið forseti Kasakstans frá sjálfstæði landsins, sagði af sér í mars 2019 varð Toqaev settur forseti landsins þar sem hann var þá forseti öldungadeildarinnar.[5] Toqaev tók við forsetaembættinu til bráðabirgða þann 20. mars 2019.[6]

Stjórnarflokkurinn Nur Otan valdi Toqaev sem forsetaframbjóðanda sinn í kosningum sem voru boðaðar 9. júní 2019.[7] Þetta var gert á flokksþingi sem Nazarbajev, leiðtogi flokksins, stýrði.

Samhliða forsetakosningunum, sem almennt var búist við að Toqaev ynni, fóru fram mótmæli í Kasakstan þar sem lögregla handtók bæði mótmælendur og blaðamenn.[8] Samkvæmt yfirkjörstjórn landsins vann Toqaev kosningarnar með 70,96% atkvæða.[9] Frambjóðandinn í öðru sæti, Amirjan Qosanov, hlaut 16,23% atkvæðanna.[10] Alþjóðlegir eftirlitsmenn töldu að kosningunum hefði verið hagrætt í þágu Toqaevs.[11] Eftirlitsnefnd ÖSE taldi ekki að virðing hefði verið borin fyrir grundvallarréttindum og benti á ýmsa vankanta við framkvæmd kosninganna.[12][13]

Í janúar árið 2022 brutust út fjöldamótmæli gegn stjórn Toqaevs vegna hækkunar á eldsneytisverði. Toqaev biðlaði til Sameiginlegu öryggissáttmálastofnunarinnar, varnarbandalags fyrrum sovétlýðvelda, um aðstoð. Aðildarríki bandalagsins sendu hermenn til Kasakstans sem aðstoðuðu stjórn Toqaevs að kveða niður mótmælin.[14][15] Talið er að á þriðja hundrað manns hafi farist í mótmælunum.[16]

Eftir mótmælin lét Toqaev gera breytingar á stjórnarskrá Kasakstans til þess að færa vald úr höndum forsetans í hendur þingsins og afnema sérstök forréttindi sem Núrsúltan Nazarbajev naut enn. Þá var ættingjum forsetans bannað að gegna embættum innan ríkisstjórnarinnar.[17] Breytingarnar voru samþykktar með miklum meirihluta í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 6. júní 2022.[18]

Eftir að breytingarnar voru samþykktar í þjóðaratkvæðagreiðslu lét Toqaev flýta næstu forsetakosningum og bauð sig fram til endurkjörs.[19] Í kosningunum, sem haldnar voru 21. nóvember 2022, vann Toqaev öruggan sigur með meira en 80 prósentum atkvæða. Líkt og með kosningarnar 2019 gerði ÖSE alvarlegar athugasemdir við framkvæmd kosninganna.[20]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „В Акорде сообщили о разводе действующего Президента Казахстана“. caravan.kz (rússneska). 29. mars 2019. Sótt 11. desember 2025.
  2. ↑ Joanna Lillis: Kazakhstan: A president called Tokayev. A future called Nursultan, Eurasianet, 20. mars 2019. Skoðað 9. september 2026.
  3. 1 2 3 4 5 6 7 The President of the Republic of Kazakhstan, Embætti forseta Kasakstans. Skoðað 9. september 2026.
  4. ↑ Secretary-General Appoints Kassym-Jomart Tokayev of Kazakhstan as Director-General, United Nations Office at Geneva, Sameinuðu þjóðirnar, 11. mars 2011. Skoðað 9. september 2026.
  5. ↑ Kazakh leader Nazarbayev resigns after three decades, BBC News, 19. mars 2019. Lest 1. juni 2019.
  6. ↑ Qasym-Jomart Toqayev Takes the Oath of Office, Kazach TV, 20. mars 2019. Skoðað 9. september 2026.
  7. ↑ Assel Satubaldina: Kazakh ruling party nominates incumbent President Tokayev as candidate for June 9 presidential election, Astana Times, 23. apríl 2019. Skoðað 9. september 2026.
  8. ↑ „Hundreds Detained In Kazakhstan As Nazarbaev's Chosen Successor Set To Win Presidential Election“. RadioFreeEurope/RadioLiberty (enska). 9 júní 2019. Sótt 9 júní 2019.
  9. ↑ Zhussupova, Dilshat (10 júní 2019). „Tokayev wins Kazakhstan's presidency with 70.76 percent of vote, official preliminary results say“. The Astana Times (enska). Afrit af upprunalegu geymt þann 10 júní 2019. Sótt 10 júní 2019.
  10. ↑ „Kazakh Human Rights Groups Demand Thorough Investigation Of Mass Detentions During Election“. RadioFreeEurope/RadioLiberty (enska). Sótt 11 júní 2019.
  11. ↑ Lillis, Joanna (9 júní 2019). „Hundreds arrested as Kazakhs protest against 'rigged' election“. The Guardian (bresk enska). ISSN 0261-3077. Sótt 9 júní 2019.
  12. ↑ „Potential for political reform left untapped in Kazakhstan's early presidential election through lack of respect for fundamental freedoms and widespread voting irregularities, international observers say | OSCE“. www.osce.org. Sótt 10 júní 2019.
  13. ↑ Birgir Þór Harðarson (10. júní 2019). „ÖSE gagnrýnir framkvæmd forsetakosninga“. RÚV. Sótt 9. september 2026.
  14. ↑ Ævar Örn Jósepsson (6. janúar 2022). „Bandalag fyrrum Sovétríkja sendir lið til Kasakstan“. RÚV. Sótt 9. september 2026.
  15. ↑ Jónas Atli Gunnarsson (9. janúar 2022). „Hvað er að gerast í Kasakstan?“. Kjarninn. Sótt 12. janúar 2022.
  16. ↑ Markús Þ. Þórhallsson (30. janúar 2022). „Forseti Kasakstan afþakkar alþjóðlega rannsókn“. RÚV. Sótt 9. september 2026.
  17. ↑ Pétur Magnússon (5. júní 2022). „Kjósa um breytingar á stjórnarskrá í Kasakstan“. RÚV. Sótt 9. september 2026.
  18. ↑ Ólöf Rún Erlendsdóttir (6. júní 2022). „Mikill meirihluti Kasaka kaus breytta stjórnarskrá“. RÚV. Sótt 9. september 2026.
  19. ↑ Markús Þ. Þórhallsson (17. nóvember 2022). „Forsetakosningar tæpu ári eftir blóðug mótmæli“. RÚV. Sótt 9. september 2026.
  20. ↑ Markús Þ. Þórhallsson (21. nóvember 2022). „Sitjandi forseti sigurvegari kosninga í Kasakstan“. RÚV. Sótt 9. september 2026.


Fyrirrennari:
Núrsúltan Nazarbajev
Forseti Kasakstans
(20. mars 2019 –)
Eftirmaður:
Enn í embætti