Fara í innihald

Mette-Marit Noregsdrottning

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skjaldarmerki Lukkuborgarar Drottning Noregs
Lukkuborgarar
Mette-Marit Noregsdrottning
Mette-Marit
Ríkisár 28. ágúst 2026 –
SkírnarnafnMette-Marit Tjessem Høiby
Fædd19. ágúst 1973 (1973-08-19) (53 ára)
 Kristiansand, Vestur-Agðir, Noregi
Konungsfjölskyldan
Faðir Sven O. Høiby
Móðir Marit Tjessem
EiginmaðurHákon 8. (g. 2001)
BörnMarius Borg Høiby
Ingiríður Alexandra
Sverrir Magnús

Mette-Marit (fædd Mette-Marit Tjessem Høiby; 19. ágúst 1973) er drottning Noregs sem eiginkona Hákonar 8. Noregskonungs.

Konungshjónin eiga tvö börn, Ingiríði Alexöndru krónprinsessu og Sverri Magnús prins. Mette-Marit á einnig eldri son úr fyrra sambandi, Marius Borg Høiby. Sem krónprinsessa var Mette-Marit umvafin hneykslismálum í tengslum við gömul sambönd hennar, vináttu hennar við bandaríska kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein og sakfellingu eldri sonar hennar í héraði fyrir nauðgun. Mette-Marit greindist með lungnatrefjun árið 2018 og gekkst undir lungnaígræðslu árið 2026.

Mette-Marit Tjessem Høiby fæddist þann 19. ágúst 1973 í Kristiansand í suðurhluta Noregs. Faðir hennar var blaðamaður sem glímdi við áfengisvanda og móðir hennar bankastarfsmaður. Að eigin sögn var Mette-Marit „samviskusamasti unglingur í heimi“ þar til hún var 16 ára og fór til Ástralíu í skiptinám. Eftir það hafi hún gerst uppreisnarsamari og hafi trúlofast manni sem kynnti hana fyrir house-tónlistarsenunni í Ósló, þar sem hún prófaði hass og e-töflur, að því er kemur fram í óopinberri ævisögu hennar. Mette-Marit eignaðist soninn Marius þegar hún var 24 ára gömul eftir stutt samband við annan mann.[1]

Mette-Marit kynntist Hákoni, þáverandi krónprins Noregs, á Qvark-tónlistarhátíðinni í Kristiansand árið 1999. Þau felldu fljótt hugi saman en samband þeirra varð strax umdeilt þegar fréttir um það bárust til norsku þjóðarinnar. Fyrri lífsstíll hennar vakti umtal ásamt því að hún væri einstæð móðir og jafnframt að barnsfaðir hennar væri þekktur smáglæpamaður. Þegar Hákon og Mette-Marit tilkynntu trúlofun sína árið 2000 mættu fréttirnar töluverðri mótspyrnu frá hluta almennings og kröfur voru uppi um að Haraldur 5. Noregskonungur neitaði að leyfa ráðahaginn.[2] Þegar leið að brúðkaupi þeirra árið 2001 sýndu skoðanakannanir þó að meirihluti Norðmanna studdi samband þeirra og að Mette-Marit yrði drottning.[3] Hákon og Mette-Marit giftust í ágúst 2001 og Mette-Marit varð þar með krónprinsessa Noregs.

Mette-Marit náði að heilla norsku hlutina í hlutverki krónprinsessu og varð mjög vinsæl.[4] Þau Hákon eignuðust tvö börn saman, Ingiríði Alexöndru krónprinsessu og Sverri Magnús prins.[5]

Árið 2018 greindist Mette-Marit með sjaldgæfa tegund lungnatrefjunar, ólæknandi sjúkdóms sem veldur bandvefsmyndun í lungum og mæði. Mette-Marit dró úr konunglegum skyldum og afboðaði sig af ýmsum viðburðum vegna sjúkdómsins og fór á biðlista yfir lungnaígræðslu.[1][6] Mette-Marit gekkst undir vel heppnaða lungnaígræðslu í júní árið 2026.[7]

Mette-Marit varð mjög umdeild að nýju árið 2026 vegna máls sonar hennar, Mariusar, sem fékk á sig 38 opinberar kærur, meðal annars vegna grófs ofbeldis og vörslu á eiturlyfjum. Mette-Marit brást við með því að hringja í meint fórnarlömb Mariusar og reyna að fá þau til að hætta við að kæra málið. Eftir að spurðist út um þessi afskipti hennar neyddist hún til að biðjast afsökunar opinberlega.[4] Marius Høiby var dæmdur í fjögurra ára fangelsi af héraðsdómi í Ósló fyrir nauðgun þann 15. júní 2026. Hann var hins vegar sýknaður af tveimur öðrum nauðgunarákærum.[8]

Um svipað leyti og mál Mariusar var í hámæli varð Mette-Marit umtöluð vegna Epstein-skjalanna sem birt voru af bandaríska dómsmálaráðuneytinu. Í skjölunum birtust tölvupóstsamskipti sem sýndu fram á að Mette-Marit hafði átt í nánu sambandi við bandaríska kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Króatíski læknirinn Boris Nikolic hafði kynnt hana fyrir Epstein á Heimsviðskiptaráðstefnunni í Davos árið 2011. Í tölvupóstunum kom meðal annars fram að Mette-Marit hafði dvalist á heimili Epsteins í Flórída í fjóra daga árið 2013.[1] Mette-Marit baðst afsökunar á vináttu þeirra Epsteins í einkaviðtali við ríkismiðilinn NRK í mars 2026 og tók fram að sameiginlegur vinur þeirra hefði haft hús hans að láni þegar hún dvaldist þar.[9] Mál Mariusar og Epstein-skjölin urðu álitshnekkir fyrir Mette-Marit. Í febrúar 2026 sagðist tæpur helmingur Norðmanna ekki vilja að hún yrði drottning.[10]

Mette-Marit varð drottning Noregs þann 28. ágúst 2026 þegar Haraldur 5. lést og Hákon tók við krúnunni undir nafninu Hákon 8. Noregskonungur.[11]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. 1 2 3 „Konunglega ævintýrið sem breyttist í martröð“. Heimildin. 2. febrúar 2026. Sótt 30. ágúst 2026.
  2. ↑ Guðni Ölversson (25. ágúst 2001). „Prinsinn giftist einstæðri móður“. Dagblaðið Vísir. bls. 18.
  3. ↑ „Norskt ævintýri í nútímabúningi“. Morgunblaðið. 24. ágúst 2001. bls. 31.
  4. 1 2 „Af hverju eru Norðmenn svona slegnir vegna Mette-Marit og Epstein“. mbl.is. 3. febrúar 2026. Sótt 31. ágúst 2026.
  5. ↑ Samúel Karl Ólason (28. ágúst 2026). „Hver er Há­kon VIII Noregs­konungur?“. Vísir. Sótt 28. ágúst 2026.
  6. ↑ „Ástand Mette-Maritar lífshættulegt“. mbl.is. 5. júní 2026. Sótt 30. ágúst 2026.
  7. ↑ Freyja Þórisdóttir (17. júní 2026). „Mette-Marit krón­prinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri að­gerð“. Vísir. Sótt 31. ágúst 2026.
  8. ↑ „Sonur Mette-Marit dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðganir“. DV. 15. júní 2026. Sótt 30. ágúst 2026.
  9. ↑ Hólmfríður Gísladóttir (20. mars 2026). „Mette-Marit í einka­við­tali við NRK: „Að sjálf­sögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann"“. Vísir. Sótt 31. ágúst 2026.
  10. ↑ Björgvin Gunnarsson (3. febrúar 2026). „Nær helmingur Norðmanna vill ekki að Mette-Merit verði drottning“. Mannlíf. Sótt 31. ágúst 2026.
  11. ↑ Markús Þ. Þórhallsson (28. ágúst 2026). „Haraldur Noregskonungur er látinn“. RÚV. Sótt 28. ágúst 2026.