Mál, sannleikur og rökfræði
Útlit
Mál, sannleikur og rökfræði (e. Language, Truth and Logic) er rit um heimspeki eftir breska heimspekinginn Alfred Jules Ayer. Það kom út árið 1936. Ritið skilgreinir, útskýrir og færir rök fyrir sannreynanleikalögmáli rökfræðilegu raunhyggjunnar. Ayer ræðir hvernig beita megi sannreynanleikalögmálinu í glímunni við gátur heimspekinnar. Ayer reynir m.a. að sýna fram á að spurningar og fullyrðingar frumspekinnar, siðfræðinnar og guðfræðinnar séu merkingarlausar.
Ritið skiptist í átta kafla:
- I. Útrýming frumspekinnar
- II. Verkan heimspekinnar
- III. Eðli heimspekilegrar greiningar
- IV. A Priori
- V. Sannleikur og líkindi
- VI. Gagnrýni á siðfræði og guðfræði
- VII. Sjálfið og hinn sameiginlegi heimur
- VIII. Lausn óráðinna gáta í heimspeki
Mál, sannleikur og rökfræði er eitt vinsælasta og víðlesnasta ritið í anda rökfræðilegrar raunhyggju.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Wikivitnun er með safn tilvitnana á síðunni Alfred Jules Ayer.